

Roberto De Zerbi segir að lokaleikur Tottenham gegn Everton um helgina sé mikilvægari en Evrópudeildarsigur félagsins á síðasta tímabili.
Tottenham tapaði 2-0 fyrir Chelsea á Stamford Bridge og fer nú inn í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar aðeins tveimur stigum fyrir ofan West Ham í fallbaráttunni. Spurs þurfa því enn að berjast fyrir sæti sínu í deildinni.
Eftir leikinn hélt De Zerbi tilfinningaþrungna ræðu fyrir leikmönnum sínum þar sem hann lagði áherslu á að leikurinn gegn Everton skipti meira máli en úrslitaleikurinn í Bilbao þar sem Tottenham vann Manchester United og Evrópudeildina á síðasta tímabili.
„Sunnudagurinn er úrslitaleikur Tottenham. Ekki Bilbao gegn Manchester United,“ sagði De Zerbi.
„Núna erum við að spila fyrir eitthvað mikilvægara en bikar. Stoltið, saga félagsins og virðingin skipta meira máli.“
Tottenham sýndi batamerki undir lok leiksins gegn Chelsea eftir að James Maddison kom inn á sem varamaður. De Zerbi sagði þó óvíst hvort miðjumaðurinn yrði klár í byrjunarliðið gegn Everton.
„Við getum haldið okkur uppi með James eða án hans,“ sagði Ítalinn.
Tottenham þarf nú að forðast tap í lokaumferðinni til að tryggja áframhaldandi sæti sitt í ensku úrvalsdeildinni án þess að treysta á úrslit West Ham.