
Sjálfstæðisflokkurinn og Miðflokkurinn eru sigurvegarar kosninganna í Reykjavík. Báðir flokkar bættu við sig miklu fylgi og þremur mönnum. Sjálfstæðisflokkurinn úr sex í níu og Miðflokkurinn, sem ekki átti borgarfulltrúa á síðasta kjörtímabili, náði þremur mönnum inn í borgarstjórn. Saman geta þessir tveir flokkar myndað tveggja flokka meirihluta, sem er eini raunhæfi tveggja flokka meirihlutinn í borginni.
Viðreisn tvöfaldaði fylgi sitt og er nú með tvo borgarfulltrúa í stað eins á síðasta kjörtímabili. Flokkurinn náði ekki því markmiði sínu að landa þremur fulltrúum í borgarstjórn. Framsókn galt afhroð og tapaði þorra fylgis síns og þremur borgarfulltrúum. Einar Þorsteinsson er nú eini borgarfulltrúi Framsóknar.
Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, hefur öll spil á hendi og getur valið sér samstarfsaðila í meirihluta. Orðið á götunni er að hvernig sem á það sé litið séu Sjálfstæðisflokkurinn og Miðflokkurinn þeir flokkar í borgarstjórn sem eiga mesta samleið málefnalega. Þeir eru auk þess sigurvegarar kosninganna, sigur þeirra felldi meirihlutann og því rökrétt að þessir tveir flokkar myndi næsta meirihluta.
Hildur Björnsdóttir á vitanlega líka þann kost að fá til samstarfs við sig Viðreisn og Framsókn. Orðið á götunni er að slíkur meirihluti yrði hins vegar miklu veikari en tveggja flokka meirihluti Sjálfstæðisflokks og Miðflokks. Ástæða þess er ekki síst sú, að erfitt yrði fyrir Sjálfstæðisflokkinn að treysta á eins manns meirihluta með Einari Þorsteinssyni, Framsóknarmanni. Reynslan sýnir að ekki þarf mikið til að hann hlaupist undan merkjum, telji hann sig eiga von á stundarhagnaði af slíku, líkt og gerðist þegar hann sleit meirihlutasamstarfi við Samfylkingu, Viðreisn og fleiri flokka í febrúar 2025, þegar skoðanakannanir voru Framsókn verulega óhagstæðar. Viðreisn var í meirihlutanum sem Einar sleit fyrirvaralaust og því má ætla að Viðreisn setji hæfilega fyrirvara á nýtt samstarf við hann.
Orðið á götunni er að kjósendur í Reykjavík séu að kalla eftir nýjum og breyttum meirihluta í borginni og því sé fullkomlega eðlilegt að sigurvegararnir, Sjálfstæðisflokkurinn og Miðflokkur, sem saman bættu við sig sex borgarfulltrúum, fóru úr sex í 12, svari því kalli og myndi saman meirihluta.
Orðið á götunni er að Ari Edwald, oddviti Miðflokksins, sé ekki hinn dæmigerði Miðflokksmaður, sem agnúast út í útlendinga og alla þá sem ekki passa vel í dökkgrá jakkaföt með bindi. Ari er í raun Sjálfstæðismaður, eins og svo margir Miðflokksmenn, hefur víðtæka reynslu af fyrirtækjarekstri sem fyrrverandi forstjóri 365 miðla og Mjólkursamsölunnar, og væntanlega stendur fátt í vegi fyrir góðu samstarfi hans við Hildi Björnsdóttur.
Orðið á götunni er að mun vænlegra sé fyrir Hildi að ganga til samstarfs við Ara en að mynda þriggja flokka meirihluta sem hangir á því að Einar Þorsteinsson fari ekki á taugum. Einnig má færa góð rök fyrir því að málefnalega sé styttra milli Miðflokksins og Sjálfstæðisflokksins en milli Viðreisnar og Sjálfstæðisflokksins.