

Öldungadeild Bandaríkjaþings hefur samþykkt útnefningu Donald Trump Bandaríkjaforseta á Billy Long sem sendiherra til Íslands. Long, sem hefur stutt við málstað nýnasista á samfélagsmiðlum, grínaðist með innlimun Íslands inn í Bandaríkin við litla hrifningu hér á landi.
Long var á meðal 50 skipaðra embættismanna sem þingið samþykkti eins og segir í frétt dagblaðsins Washington Post um málið. Long er hins vegar sá umdeildasti.
Þegar tilkynnt var að Trump hefði útnefnt Long sem sendiherra á Íslandi sagði Long að Ísland yrði 52. fylki Bandaríkjanna. Var það augljós útfærsla hótana Trump í garð Kanada og Grænlands, sem hann hefur sagst vilja innlima inn í Bandaríkin. Kanada sagðist hann vilja gera að 51. fylkinu.
Í ljósi ógnarinnar frá Washington tóku Íslendingar illa í þetta „grín“. Til að mynda sagði Sigmar Guðmundsson, þingmaður, að ummælin væru grafalvarleg. Þá var safnað undirskriftum gegn komu Long til Íslands. Vildu margir að Ísland beitti 4. grein Vínarsáttmálans til að koma í veg fyrir skipun hans. En samkvæmt sáttmálanum getur ríki hafnað einstaka sendiherrum.
Long hefur heldur ekki hætt að hneyksla fólk eftir þetta en nýlega deildi hann færslu nýnasistans Nick Fuentes. En Fuentes hefur getið sér orð fyrir öfgar, meðal annars vill hann svipta konur kosningarétti og rétti til menntunar, styður Adolf Hitler og krossfarirnar.
Útnefning Long var samþykkt í þinginu með 46 atkvæðum Repúblikana gegn 43 atkvæðum Demókrata.