

Billy Long, sem Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur tilnefnt sem sendiherra á Íslandi, deildi ræðu nýnasistans Nick Fuentes. Fuentes styður hvíta yfirburðahyggju og hefur meðal annars sagt að best væri ef konur hefðu ekki kosningarétt.
Tilnefning Billy Long sem sendiherra olli mikilli ólgu hér á landi en hann „grínaðist“ með að Ísland yrði gert að 52. fylki Bandaríkjanna. Var undirskriftum safnað gegn tilnefningunni og þingmenn sögðu málið grafalvarlegt, einkum í ljósi hótana Bandaríkjamanna í garð Grænlands.
Nú greinir miðillinn Jewish Insider frá því að Long hafi deilt ræðu Nick Fuentes, eins þekktasta boðbera hvítrar yfirburðarhyggju í Bandaríkjunum. Ræðan var þrjár mínútur að lengd og fjallaði um innflytjendamál.
Fuentes, sem er 27 ára gamall, birtir hatursfullt efni á internetinu. Stuðningsmenn hans eru gjarnan kallaðir „Groypers“ eða „Groyper herinn.“
Fuentes er nýnasisti, hefur talað gegn gyðingum og afneitað helförinni, sem og gegn öðrum kynþáttum en þeim hvíta. Heldur hann því fram að innflutningur fólks sé að „eyða“ hvítu fólki í Bandaríkjunum.
Hann er andlýðræðissinni, styður einræði, og hefur lýst aðdáun á alræmdum einræðisherrum á borð við Adolf Hitler og Jósef Stalín sem báru ábyrgð á tugmilljónum mannslífa hvor. Þá hefur hann einnig lýst stuðningi við önnur voðaverk í mannkynssögunni eins og krossfarrinar og rannsóknarréttinn þar sem fólk var pyntað til dauða fyrir „trúvillu.“
Fuentes styður nútíma stjórnmálaforingja á borð við Donald Trump og Vladímír Pútin, styður innrás Rússa inn í Úkraínu og yfirtöku Kína á Tævan. Þá hefur hann einnig lýst aðdáun á Talíbanastjórninni í Afganistan.
Kvenhatur er áberandi málflutningi Fuentes. Hann vill svipta konur kosningarétti, rétti til þungunarrofs og rétti til menntunar. Hefur hann lýst konum sem „pólitískum óvini númer eitt“ og „barna útungunarvélum.“
Fuentes tilheyrir incel-hreyfingunni svokölluðu, hreyfingu gramra ungra karlmanna sem telja sig svika af konum um kynlíf. Hefur hann lýst kynlífi með konum sem „hinsegin“ og að kynlífsleysi sé besta leiðin fyrir gagnkynhneigða menn.
Varla þarf að taka það fram að Fuentes hefur einnig talað gegn réttindum hinsegin fólks, svo sem réttindum til giftinga.