
Þannig lýsti Harry bróðir hans þessu í bók sinni „Spare“ sem kom út 2023. Hann sagði einnig að hann hefði orðið fyrir árás Vilhjálms.
Í nýrri bók, sem heitir „Kate! Hugrekkið, náð og krafturinn hjá konunni sem verður drottning“ og er eftir Bandaríkjamanninn Christopher Andersen, eru nýjar staðreyndir um klofninginn í bresku konungsfjölskyldunni dregnar fram í dagsljósið.
Page Six segir að einnig sé fjallað um skap Vilhjálms.
„Þegar hann reiðist, þá öskrar hann,“ er haft eftir fyrrum starfsmanni Vilhjálms.
Andersen segir að þrátt fyrir að Vilhjálmur sé „vingjarnlegur og tillitssamur“ við starfsfólk sitt og ókunnuga og hækki aldrei róminn við börnin og Katrínu eiginkonu sína, þá kraumi skapið undir yfirborðinu.
Andersen ræddi við Page Six um Vilhjálm og sagði að hann geti fengið ofsafengin reiðiköst.