fbpx
Laugardagur 23.maí 2026
Pressan

Konur skildar eftir úti í náttúrunni af kærastanum – Dæmi um dauðsföll

Pressan
Laugardaginn 23. maí 2026 20:00

Karlarnir skilja konurnar eftir í óbyggðum.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það sem átti að vera hugguleg göngutúr með kærastanum úti í náttúrunni hefur endað sem mjög óþægileg lífsreynsla fyrir margar konur og þær hafa ekki allar komist lifandi frá þessu.

Í því sem átti að vera hugguleg gönguferð úti í náttúrunni, hafa margar konur verið skildar eftir af kærastanum. CNN skýrir frá þessu og segir að þetta fyrirbæri megi rekja til austurrísks máls.

Undir myllumerkinu #alpinedivorce (alpaskilnaður) hafa margir deilt því sem þær lentu í í göngu- eða skíðaferðum. Segja þær frá því að kærastar þeirra hafi skilið þær eftir.

Alpaskilnaður er orð sem nær yfir stöður sem ná allt frá pirringi vegna gönguhraða eða ósamkomulags á leiðinni, til tilfella þar sem makinn er skilinn eftir af ásettu ráði.

Í myndbandi, sem hefur fengið einna mest áhorf á TikTok, segir grátandi kona frá því að hún hafi verið skilin eftir þegar hún var á göngu á afskekktu fjallasvæði. Það er notandinn Everafteriya sem birti það og skrifaði með því: „Sönnun þess að þú ferð í gönguferð með honum í fjalllendi en hann skilur þig eina eftir og þú fattar síðan að honum líkaði aldrei við þig.“

Þrátt fyrir að ekki hafi verið staðfest að konan sé að segja satt, þá hefur sagan snert við mörgum og um leið vakið undrun margra fyrir hvaða stöðu hún var í og almennt á því fyrirbæri sem Alpaskilnaður er.

Alpaskilnaður

Nafnið er dregið af skáldsögunni „An Alpine Divorce“ eftir Robert Barr en hún var gefin úr 1890.

Karlkyns söguhetjan í bókinni undirbýr sig undir að myrða eiginkonu sína með því að ýta henni fram af fjallsbrún. Þetta ætlar hann að gera til að losna úr óhamingjusömu hjónabandi.

Þessi bók var dregin fram í kastljósið í tengslum við mál hins austurríska Thomas Plamberger sem skildi kærustuna sína eftir uppi á ísköldu fjalli. Hann var ákærður fyrir manndráp af gáleysi því hún lést uppi á fjallinu. Hann var dæmdur í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi og til að greiða 9.400 evrur í sekt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 dögum

Bandarískur læknir þjakaður af ebólu – svona virðist hann hafa smitast

Bandarískur læknir þjakaður af ebólu – svona virðist hann hafa smitast
Pressan
Fyrir 3 dögum

Hvarf Madeleine McCann – Segir að ógeðfelldur grunur gegn McCann-hjónunum lifi enn góðu lífi

Hvarf Madeleine McCann – Segir að ógeðfelldur grunur gegn McCann-hjónunum lifi enn góðu lífi
Pressan
Fyrir 4 dögum

Móðirin hringdi í lögreglu í gærmorgun – Skömmu síðar hófst blóðug árás

Móðirin hringdi í lögreglu í gærmorgun – Skömmu síðar hófst blóðug árás
Pressan
Fyrir 4 dögum

Sat á dauðadeild í 30 ár og borðaði síðustu máltíðina þrisvar – Kim Kardashian kom honum til hjálpar

Sat á dauðadeild í 30 ár og borðaði síðustu máltíðina þrisvar – Kim Kardashian kom honum til hjálpar
Pressan
Fyrir 5 dögum

Fyrrum embættismaður segir að Pútín sé að missa tökin á þjóð sinni – „Eru farnir að sjá fyrir sér framtíð án hans“

Fyrrum embættismaður segir að Pútín sé að missa tökin á þjóð sinni – „Eru farnir að sjá fyrir sér framtíð án hans“
Pressan
Fyrir 5 dögum

Myndband sýnir þegar tvær orrustuþotur rákust saman á flugsýningu – Allir komust lífs af

Myndband sýnir þegar tvær orrustuþotur rákust saman á flugsýningu – Allir komust lífs af