fbpx
Laugardagur 23.maí 2026
Pressan

Svona er hægt að halda eggjum ferskum í eitt ár

Pressan
Laugardaginn 23. maí 2026 17:30

Mynd úr safni. Mynd: EPA-EFE/MIGUEL GUTIERREZ

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Getur verið að það sé hægt að geyma egg í allt að eitt ár? Ef svo er, þá er það auðvitað frábært að hægt sé að geyma þau svona lengi. Sérstaklega ef maður getur keypt mikið inn á tilboðsverði en vandinn hér á landi er auðvitað, eins og neytendur þekkja, að það er lítið um tilboð sem bragð er að.

Á TikTok prófílnum This Mum Cooks var nýlega deilt praktísku ráði til að lengja „líftíma“ eggja. Aðferðin felst einfaldlega í að frysta þau. Fram kemur að til að frysta þau þurfi að taka þau úr skurninni. Það þýðir auðvitað að þú ert með eggjarauðu og eggjahvítu sem þarf að gera eitthvað við. Lausnin er að sögn að hræra eggin saman, eins og þú myndir gera ef þú ert að gera hrærð egg. Síðan eru þau sett í poka og í frysti. Með þessu er auðvelt að nota eggin síðar.

Ef þú vilt frekar skilja hvíturnar frá rauðunum, þá er það í lagi og þú getur fryst þetta í sitt hvoru lagi. Áferð rauðanna getur breyst og þær orðið svolítið hlaupkenndar en það er hægt að koma í veg fyrir það með því að setja smávegis sykur eða salt með í pokann, byggt á hvað þú ætlar að nota eggin í síðar.

Það er hægt að frysta hvíturnar beint en það þarf að lágmarki að hræra rauðurnar aðeins áður en þær fara í frystinn. Geymsluþolið í frystinum er síðan allt að 12 mánuðir.

Þegar kemur að því að nota eggin, er mjög mikilvægt að þíða þau upp á réttan hátt. Með því tryggir þú að áferðin og bragðið séu eins og venjulega. Það á að þíða eggin hægt og rólega upp með því að setja þau í ísskápinn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Móðir dæmd í að lágmarki 20 ára fangelsi eftir ólýsanlegan harmleik

Móðir dæmd í að lágmarki 20 ára fangelsi eftir ólýsanlegan harmleik
Pressan
Fyrir 2 dögum

Mun deyja í fangelsi vegna þess sem hann gerði bróður sínum og fjölskyldu hans

Mun deyja í fangelsi vegna þess sem hann gerði bróður sínum og fjölskyldu hans
Pressan
Fyrir 3 dögum

Bandaríkin íhuga ákæru gegn Raúl Castro vegna atviks árið 1996

Bandaríkin íhuga ákæru gegn Raúl Castro vegna atviks árið 1996
Pressan
Fyrir 3 dögum

Nýtt netsvindl breiðist hratt út: Svona virkar „stafræn handtaka“

Nýtt netsvindl breiðist hratt út: Svona virkar „stafræn handtaka“
Pressan
Fyrir 4 dögum

Fékk „brostið hjarta“-heilkenni eftir dauða móður sinnar – tekur nú þátt í byltingarkenndri rannsókn

Fékk „brostið hjarta“-heilkenni eftir dauða móður sinnar – tekur nú þátt í byltingarkenndri rannsókn
Pressan
Fyrir 5 dögum

Hjón létu börnin sín nærast eingöngu á fljótandi fæði – 12 ára stúlka leit út fyrir að vera 6-8 ára

Hjón létu börnin sín nærast eingöngu á fljótandi fæði – 12 ára stúlka leit út fyrir að vera 6-8 ára
Pressan
Fyrir 5 dögum

Systurnar voru taldar hafa látist í hörmulegu slysi – Nú hefur móðir þeirra verið handtekin

Systurnar voru taldar hafa látist í hörmulegu slysi – Nú hefur móðir þeirra verið handtekin
Pressan
Fyrir 5 dögum

Karlar sem hlusta á konuna sína ná meiri árangri

Karlar sem hlusta á konuna sína ná meiri árangri