fbpx
Laugardagur 23.maí 2026
Pressan

Nýjar ESB-reglur fyrir farsíma – Verða að hafa nýja virkni frá næsta ári

Pressan
Laugardaginn 23. maí 2026 20:30

ESB setur nýjar reglur um farsíma.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Snjallsíminn er orðinn fastur hluti af daglegu lífi marga og mjög mörgum þykir hann algjörlega ómissandi. Hann er notaður til að stunda bankaviðskipti, skipuleggja ferðalög og auðvitað til að vera í sambandi við fjölskyldu og vini.

Einn af göllunum við farsímana er að þeir eru nú eiginlega þannig að fólk neyðist til að skipta þeim út með nokkurra ára millibili en nú vill Evrópusambandið breyta þessu. Frá og með næsta ári taka nýjar reglur um farsíma gildi. Þeim er ætlað að lengja líftíma þeirra og auðvelda viðgerðir á þeim.

Raftæki verða sífellt fyrirferðarmeiri þegar horft á hverju við hendum í ruslið og farsímar eru stór hluti af raftækjaruslinu.

Mörgum símum er hent, jafnvel þótt þeir virki enn. Oft er rafhlaðan orðin léleg eða þá að símarnir uppfylla ekki lengur þörf notendanna.

Með nýju reglunum á að halda aftur af þessari þróun. Áhersla er á að lengja líftíma símanna og gera það aðlaðandi að láta gera við þá frekar en að kaupa nýja. Den Offentlige skýrir frá þessu.

Eitt mikilvægasta atriðið í nýjum reglunum snýst um rafhlöðuna. Framvegis eiga rafhlöður vera í toppstandi mun lengur en í dag.

Framleiðendum verður gert skylt að gera neytendum kleift að skipta sjálfir um rafhlöðu í símunum. Þetta á að vera auðvelt og ekki á að þurfa að nota einhvern sérstakan búnað til að gera þetta. Markmiðið með þessu er að koma í veg fyrir að símarnir verði ónothæfir eingöngu vegna lélegrar rafhlöðu.

Reglurnar ná einnig yfir aðgengi að varahlutum. Framleiðendurnir verða að sjá til þess, í lengri tíma en áður, að varahlutir séu aðgengilegir þannig að það sé raunhæft að fólk geti gert við farsímana sína.

Einnig verður þess krafist að hugbúnaðaruppfærslur eigi sér stað innan ákveðins tímaramma. Þetta á að tryggja að símarnir virki ekki bara tæknilega séð, heldur einnig að þeir verði öruggir og uppfærðir í lengri tíma en nú er.

Reglurnar gilda fyrir alla nýja farsíma sem verða seldir í ESB frá 2027. Framleiðendur hafa því tíma til að laga hönnun þeirra og framleiðslu að nýju reglunum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Mun deyja í fangelsi vegna þess sem hann gerði bróður sínum og fjölskyldu hans

Mun deyja í fangelsi vegna þess sem hann gerði bróður sínum og fjölskyldu hans
Pressan
Fyrir 2 dögum

Vildi prófa ákveðna stillingu í Teslunni sinni – Það endaði ekki vel

Vildi prófa ákveðna stillingu í Teslunni sinni – Það endaði ekki vel
Pressan
Fyrir 4 dögum

Bótasvikari dæmd í fangelsi – Sagðist ekki geta gengið en keppti svo í 10 kílómetra hlaupi

Bótasvikari dæmd í fangelsi – Sagðist ekki geta gengið en keppti svo í 10 kílómetra hlaupi
Pressan
Fyrir 4 dögum

Sonur stofnanda Mango handtekinn vegna dauða föður síns

Sonur stofnanda Mango handtekinn vegna dauða föður síns