
Þetta virðist kannski vera ósköp saklaust en þetta getur hafa afleiðingar fyrir marga, afleiðingar sem eru mun alvarlegri en bara krulluð koddahárgreiðsla.
Margir húðlæknar hafa séð tengsl á milli raks hársvarðar og fjölda vandamála sem flestir vilja gjarnan sleppa við.
Ein algengasta afleiðingin? Flasa. Ástæðan er að hársvörðurinn nær ekki að anda og þorna almennilega þegar hann liggur niður í hlýjum kodda alla nóttina.
Þegar þú ferð í háttinn með blautt hár, helst rakinn við hársvörðinn klukkustundum saman. Það getur raskað jafnvæginu í náttúrulega örverulífi húðarinnar, það er að segja hjá bakteríunum og sveppum sem halda venjulega hinu niðri.
Þegar jafnvægið raskast, getur það valdið óþægindum og flösu, kláða og í sumum tilfellum exemi.
Húðlæknarnir Sanjeev Gulati og Alan J. Bauman segja að þetta snúist ekki bara um þurrktímann. Viðvarandi raki og skortur á loftflæði mynda nefnilega fullkomin skilyrði fyrir sveppavöxt. Þetta getur orðið til þess að hársvörðurinn verður rauður, aumur og húðin flagnar af.
Sumir upplifa höfuðverk ef þeir sofa með kalt og blautt hár og það er einnig meiri hætta á að hárið brotni auðveldlega af því að blautt hár er veikara og móttækilegra fyrir núningi.
Ef þú glímir nú þegar við flösu eða ertingu, þá eru til nokkrar einfaldar og náttúrulegar aðferðir sem þú getur reynt áður en þú kaupir dýrar sérvörur.
Eplaedik – Blandaðu því með vatni og notaðu til að skola hárið. Það getur komið jafnvægi á pH-gildið og dregið úr ertingu.
Matarsódi – Það er hægt að nudda honum í hársvörðinn því hann fjarlægir dauðar húðfrumur og tekst á við sveppavöxt.
Báðar þessar aðferðir eru ódýrar, náttúrulegar og auðveldar en það ætti að fara varlega í að nota þær og alls ekki nota þær of oft því þær geta þurrkað hársvörðinn við of mikla notkun að sögn Nyheder24.