fbpx
Laugardagur 23.maí 2026
Pressan

Svona er hægt að kæla hvítvín á nokkrum mínútum

Pressan
Laugardaginn 23. maí 2026 16:30

Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það eru til ýmis ráð þegar maður þarf að kæla hvítvínsflösku á skömmum tíma. Það er auðvitað best að kæla vínið í ísskáp eða frysti en það vill nú stundum farast fyrir. Svo er einfaldlega hægt að gleyma því eða þá að gestirnir koma fyrr en vænst var.

Þá þarf að vera hægt að bregðast hratt við og kæla vínið. Travel Tomorrow deildi nokkrum góðum ráðum um hvernig er hægt að kæla hvítvín hratt. Það er einnig hægt að nota þessi ráð til að kæla rósavín og sum eiga einnig við um bjór.

Ísbað – Fylltu fötu af ís og settu flöskuna í hana. Bættu síðan vatni og salti út í og passaðu að allur flöskuhálsinn sé undir vatni. Þetta er klassísk aðferð sem á að koma hitastigi vínsins niður í 7 gráður.

Frosin vínber – Þessa aðferð kæra sumir vínáhugamenn sig ekki um en hún virkar. Ef þú átt frosin vínber, þá geturðu sett nokkur út í hvítvínið. Vínberin virka sem einhverskonar ávaxtaís. Ekki skemmir fyrir að það er svo hægt að borða vínberin.

Ísmolar – Þetta ráð höfðar örugglega ekki allra en það virkar eins og ráðið hér á undan. En með þessari aðferð getur losnað um smá vatn, sem getur eyðilagt drykkinn. Það er best að nota ísinn bara í nokkrar sekúndur til að vínið þynnist ekki. Það er líka hægt að nota endurnotanlega ísmola úr plasti eða málmi

Köld glös – Hvítvínsflöskur eru oft mjög þykkar og það getur seinkað kælingu í ísskáp. Ef þú hellir víninu í glös og setur þau í frystinn, þá gengur hraðar að kæla vínið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Mun deyja í fangelsi vegna þess sem hann gerði bróður sínum og fjölskyldu hans

Mun deyja í fangelsi vegna þess sem hann gerði bróður sínum og fjölskyldu hans
Pressan
Fyrir 2 dögum

Vildi prófa ákveðna stillingu í Teslunni sinni – Það endaði ekki vel

Vildi prófa ákveðna stillingu í Teslunni sinni – Það endaði ekki vel
Pressan
Fyrir 5 dögum

Karlar sem hlusta á konuna sína ná meiri árangri

Karlar sem hlusta á konuna sína ná meiri árangri
Pressan
Fyrir 5 dögum

Ökumaður rafkrossara fékk þungan dóm: „Þessi mynd mun ásækja mig til dauðadags“

Ökumaður rafkrossara fékk þungan dóm: „Þessi mynd mun ásækja mig til dauðadags“