fbpx
Laugardagur 23.maí 2026
Pressan

Færðu sokkaför á fæturna? – Þetta er líkaminn að reyna að segja þér

Pressan
Laugardaginn 23. maí 2026 11:30

Færð þú sokkaför?

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þegar þú háttar þig þá tekurðu líklega oft eftir því að það eru för á fótunum eftir sokkana. Saumarnir þrengja að húðinni og skilja eftir sig merki sem er erfitt að losna við. Ef sokkarnir skilja eftir sig merki á fótunum, svona svipað og brjóstahaldarar skilja eftir merki á brjóstunum, þá er það ekki bara af því að sokkarnir eru of þröngir. Það er hægt að nota þessi sokkamerki til að lesa í heilsu okkar.

Yfirleitt eru sokkamerki sárasaklaus, til dæmis eftir of þrönga sokka og þau hverfa á nokkrum mínútum eftir að maður fer úr sokkunum. En sokkaför geta líka verið vísbending um heilbrigðisvandamál. Þess vegna er mikilvægt að lesa á milli línanna og hunsa ekki það sem virðist vera einfalt líkamlegt smáatriði.

Bjúgur

Við fyrstu sýn virðast sokkamerkin vera yfirborðskennd og ekkert til að hafa áhyggjur af. Engin ástæða til að fyllast örvæntingu eða leita skýringa hjá ChatGPT. Þú getur verið með bjúg en hann myndast þegar vökvi safnast fyrir í vefjum í neðri hluta líkamans.  Þetta er algengasta skýringin þegar sokkar skilja eftir sig far.

Bláæðabilun

Ef sokkamerkin sitja á húðinni í margar mínútur og þú ert með sýnilega æðahnúta, reglulega fótkrampa, kláða eða brúnleitan mislit, þá ertu kannski með bláæðabilun. Hún leggst á aðra hverja konu og fjórða hvern karl.

Truflanir á sogæðakerfinu

Þú hefur örugglega heyrt um sogæðakerfið en skilur kannski ekki alveg hvað það gerir. Það flytur hvít blóðkorn, næringarefni og úrgangsefni í gegnum allan líkamann og styður þannig við ónæmiskerfið og eyðingu eiturefna. Þegar það starfar ekki rétt lætur líkaminn þig vita.  Ef viðvarandi bólgur fylgja sokkaförunum, þyngdartilfinning eða ef þetta gerist daglega, þá getur það verið merki um vökvasöfnun, truflanir á starfsemi sogæðakerfisins eða eitlabjúgur. Þetta þarf sérfræðingur að skera úr um.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 dögum

Bandaríkin íhuga ákæru gegn Raúl Castro vegna atviks árið 1996

Bandaríkin íhuga ákæru gegn Raúl Castro vegna atviks árið 1996
Pressan
Fyrir 3 dögum

Nýtt netsvindl breiðist hratt út: Svona virkar „stafræn handtaka“

Nýtt netsvindl breiðist hratt út: Svona virkar „stafræn handtaka“
Pressan
Fyrir 5 dögum

Systurnar voru taldar hafa látist í hörmulegu slysi – Nú hefur móðir þeirra verið handtekin

Systurnar voru taldar hafa látist í hörmulegu slysi – Nú hefur móðir þeirra verið handtekin
Pressan
Fyrir 5 dögum

Karlar sem hlusta á konuna sína ná meiri árangri

Karlar sem hlusta á konuna sína ná meiri árangri
Pressan
Fyrir 5 dögum

Grænn, gulur eða þroskaður – Hvaða banani er hollastur?

Grænn, gulur eða þroskaður – Hvaða banani er hollastur?
Pressan
Fyrir 5 dögum

Göngumaður skildi eftir skilaboð í talhólfi föður síns rétt áður en hann var drepinn

Göngumaður skildi eftir skilaboð í talhólfi föður síns rétt áður en hann var drepinn