

Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur greinir frá því í yfirgripsmiklum Facebook-pistli að þótt hann sé, samkvæmt kosningaprófi, að miklu leyti sammála stefnu Samfylkingarinnar fyrir borgarstjórnarkosningarnar í Reykjavík og sé mjög ánægður með Kristrúnu Frostadóttur komi hins vegar ekki til greina að hann kjósi flokkinn, í kosningunum eftir viku. Segir hann mannavalið á listanum skýra það og að þar sé fólk sem hafi tekið þátt í að framfylgja stefnu sem hann telji ekki hafa verið til góða.
Haukur segist þess vegna vera í vandræðum með hvað hann eigi að kjósa 16. maí. Haukur segist vilja byggja ódýrt á flugvallarsvæðinu sem muni leysa húsnæðisvandann, koma Borgarlínu umsvifalaust í starfhæft ástand og tryggja að umferðin um borgina gangi greiðlega fyrir sig. Til að auðvelda valið hafi hann tekið kosningapróf RÚV og fengið Samfylkinguna í fyrsta sæti með 71 prósent en á hæla hennar hafi komið Framsókn og Flokkur fólksins. Engan þessara flokka mun hann hins vegar kjósa svo hann standi enn þá ráðalaus eftir.
Haukur segist vilja að byggt verði ódýrt á svæðinu þar sem Reykjavíkurflugvöllur er nú til að ungt fólk eigi kost á því að eignast ódýrt húsnæði eins og hans kynslóð, jafnvel þótt viðkomandi sé í hópi láglaunafólks. Það sé hlutverk ríkisins að útvega landsvæði fyrir flugvelli en ekki sveitarfélaga. Svæðið muni einnig henta vel fyrir byggð meðal annars vegna umferðarflæðisins til og frá því.
Haukur vill einnig koma Borgarlínu í gagnið sem fyrst til að draga úr umferðartöfum í borginni og þeim mikla kostnaði sem af þeim hljótist. Segir hann ljóst að fólk í ytri hverfum Reykjavíkur og öðrum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu muni græða mest á Borgarlínu þar sem hún minnki þörfina fyrir þennan hóp á að eiga fleiri en einn bíl. Samt sé þessi hópur mest á móti á Borgarlínu.
Haukur segir einnig að þótt Borgarlínan dragi hvað mest úr umferðartöfunum þurfi einnig að stækka gatnakerfið meðal annars til að mæta fyrirsjáanlegri fjölgun bíla.
Ljóst er ap Samfylkingin í borginni vill koma Borgarlínu í gagnið og hefur viljað koma Reykjavíkurflugvelli úr Vatnsmýri. Þrátt fyrir það vill Haukur ekki kjósa flokkinn. Hann segist telja núverandi ríkisstjórn þá bestu það sem af er þessari öld og sennilega síðan hann fór að fylgjast með stjórnmálum. Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar og forsætisráðherra, sé sá forystumaður sem vinstri menn eins og hann hafi svo lengi beðið eftir:
„Ég get ekki hælt Kristrúnu nægilega og tel að hún eigi mikið inni.“
Haukur er hins vegar ekki jafn ánægður með Dag B. Eggertsson þingmann Samfylkingarinnar og fyrrverandi oddvita flokksins í borgarstjórn og fyrrum borgarstjóra. Hann segir Dag vera lakasta stjórnmálamann aldarinnar sem kenna megi um afleita stöðu umferðarmála í Reykjavík, Borgarlínu og flugvallarins. Haukur segir enn fremur um Dag:
„Hann á sinn þátt í núverandi verðbólgu með gríðarlegum kostnaðarhækkunum gjalda fyrir lóðir og fyrir að hafa ekki byggt á ódýrum svæðum – fyrir almenning. Með öðru hefur stefna hans eyðilagt allt sem ég vildi að gert væri; t.d. hefur komið upp sú tíska að láta fátækt fólk leigja húsnæðið sitt, í stað þess að eignast það, eins og var í Breiðholtsverkefninu. Það að mín kynslóð á húsnæðið sitt í sirka 80-90 prósentum stóreykur kaupmátt eftirlauna. Ég veit ekki hvernig leigukynslóðinn mun lifa af þegar hún fer á eftirlaun sem eru um helmingur af núverandi launum.“
Haukur segir að til þess að hann gæti hugsað sér að kjósa Samfylkinguna hefði fólk sem vann með Degi þurft að fara af listanum. Nefnir hann þar til sögunnar Heiðu Björg Hilmisdóttur borgarstjóra og Skúla Helgason borgarfulltrúa. Fyrst þau sé á lista Samfylkingarinnar komi ekki til greina að kjósa flokkinn. Hauki líst heldur ekkert sérstaklega vel á oddvitann Pétur Marteinsson:
„Svo finnst mér Pétur gosalegur og kæruleysislegur, ég vil alvörufólk. Gott hefði verið að Samfylkingin hefði frambærilegan forystumann í Borginni – en þeir eru víst flestir laklegir og kannski ekki við öðru að búast hjá fámennri þjóð. Alla vega höfum við þurft að bíða lengi eftir Kristrúnu.“
Haukur veltir fyrir sér að lokum hvað hann eigi að kjósa. Viðreisn og Sósíalistaflokkurinn séu með frambærilega oddvita en þó sé hann ekki fyllilega sammála stefnumálum flokkanna. Líf Magneudóttir sem er í 2. sæti á lista Vinstrisins segist í athugasemd vera sammála Hauki þegar kemur að þeim málefnum sem hann nefni og hvetur hann til að skoða það nánar að kjósa Vinstrið. Þakkar Haukur Líf fyrir þá hvatningu.