fbpx
Miðvikudagur 06.maí 2026
Fréttir

Sagði lögreglumenn á höfuðborgarsvæðinu hafa beitt sér harkalega gegn ólögráða syni sínum – Dagbók lögreglunnar sagði allt aðra sögu

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 6. maí 2026 09:00

Bílastæði við Glæsibæ, sem er á horni Álfheima og Gnoðarvogs. Mynd tengist frétt ekki beint. Mynd: Skjáskot ja.is.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögreglumenn á höfuðborgarsvæðinu höfðu afskipti af ólögráða dreng, sem var ásamt vinum sínum. Vinir hans voru að sprengja flugelda og forðuðu sér þegar lögregla mætti á vettvang. Drengurinn forðaði sér ekki enda tók hann ekki þátt í athæfinu.

„Einn lögreglumannana hafi skrúfað niður rúðuna og skipað [drengnum] að koma að bílnum, gripið svo í úlpuna hans og dregið hann að sér harkalega þannig að úlpan opnaðist. Þá hafi tveir lögreglumenn stigið út úr bifreiðinni og stillt sér upp sitthvoru megin við [drenginn] og annar þeirra gripið fast í öxl hans. Þeir hafi þá talað harkalega til hans og sagt honum að það yrði ekkert úr honum og hæðst að honum þegar hann táraðist og spurt hann af hverju hann væri með svona miklar tilfinningar, hvort hann væri ekki maður og sagt honum að hann ætti að skammast sín,“

segir í kvörtun föður drengsins þann 3. febrúar til nefndar um eftirlit með lögreglu.  Í erindinu eru gerðar athugasemdir við framkomu og starfsaðferðir starfsmanna lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu þegar afskipti voru höfð af ólögráða syni hans.

Nefndin óskaði skriflega eftir svörum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu vegna málsins. Svarað var með bréfi dags. 26. mars, meðfylgjandi voru dagbókarfærsla vegna atviksins ásamt dagbókarfærslum vegna annarra afskipta sem höfð hafa verið af syni kvartanda.Í bréfi embættisins kemur m.a. eftirfarandi fram:

„[…]Kannað hefur verið með upptökur vegna málsins en því miður er ekki neitt til sem varpað getur ljósi á málið nema dagbók lögreglu vegna málsins. Lögregla hefur haft afskipti af félagahóp sem sonur kvartanda er í m.a. vegna hnífaburðar og hópasöfnun unglinga. Dagbækur þeirra mála fylgja með til upplýsinga.“

Segja drenginn hafa verið reiðan og erfitt að eiga samskipti við hann – Á eldri mál vegna hnífaburðar

Í dagbókarfærslu lögreglu vegna flugeldaatviksins kemur meðal annars fram:

„Fengum nokkrar tilkynningar um ungmenni vera að sprengja flugelda í grennd við Álfheima og Gnoðarvog. Að ungmennin væru að henda flugeldum undir bifreiðar sem getur valdið miklum skaða og nota flugelda innan um fólk. Er við komum á svæðið benti einn tilkynnandi okkur á 3 drengi sem voru á bifreiðarstæðinu við […]. Er við nálguðumst hópinn þá urðu þeir flóttalegir og tveir af drengjunum hlupu af stað.“

Segir að annar drengjanna sem hljóp á brott hafi haldið á kveikjara. Þriðji drengurinn, sá sem kvörtun til nefndarinnar snerist um, hljóp ekki burt. Segir í dagbók lögreglunnar að lögreglumenn á vettvangi hafi kallað í drenginn og beðinn hann að ræða við þá, en hann hafi ekki haft áhuga á því.

„Einnig voru þeir grunaðir um að vera að kasta flugeldum í átt að fólki og bifreiðum og vissum við því ekkert hvað hann væri með í vösunum, uppá að við yrðum sjálfir ekki fyrir einhverjum flugeldaskaða. Reyndist þetta vera […]. […] var mjög uppstökkur og dónalegur og snéri undan spurningum okkar með dónaskap. Sagði að lögreglumenn væru barnalegir í útliti, að við værum í lélegu líkamlegu ástandi og gætum ekkert hlaupið og sagði að við værum leiðinlegir og fleira.“

Segjast lögreglumennirnir hafa reynt að útskýra fyrir drengnum að málið sneri að flugeldasprengingum og reynt að útskýra fyrir honum að flugeldafikt gæti verið hættulegt..

„[…] var mjög uppstökkur og reiður og erfitt að eiga við hann samskipti vegna þess. Einnig var honum bent á að ef flugeldafíflaskapur myndi enda með því að kveikna myndi í bifreið eða húsnæði þá gætu menn farið á sakaskrá, þrátt fyrir að vera ungir. […] gaf lítið fyrir þetta og sagðist ekki hafa gert neitt. Reynt var að hafa samband við foreldra […] á vettvangi en án árangurs. Á meðan við vorum að ræða við […] þá mátti heyra háværa hvelli úr nærliggjandi götum. […] var mjög uppstökkur á meðan samskiptum okkar stóð og var farinn að gráta undir lokinn og fannst við ósanngjarnir og leiðinlegir. Reynt að benda honum á það að fjölmargir væru búnir að hringja inn útaf flugeldafíflaskap í þeim og menn þyrftu stundum að takast á við afleiðingar þegar verið er að meðhöndla flugelda utan leyfislegan tíma og þegar verið er að sprengja flugelda innan um fólk, ökutæki og húsnæði. Honum tjáð að þetta yrði bókað og að haft yrði samband við foreldra síðar. Ljóst að […] virtist vera viðkvæmur og gaf lítið fyrir afskipti okkar og vildi ekkert taka þetta til sín.“

Kom fram að ekki væri vitað hvort drengurinn bæri flugelda á sér, þar sem lögreglan leitaði ekki á honum. Einnig kom fram að drengurinn á eldri mál hjá lögreglu vegna hnífaburðar.

Taldi miður að ekki væri til upptaka af atvikinu

Í ákvörðun nefndar um eftirlit með störfum lögreglu þann 27. apríl komst nefndin að þeirri niðurstöðu að ekki væri tilefni til að aðhafast frekar vegna erindisins.

„Nefndin telur afar óheppilegt að ekki séu til upptökur af atvikinu, sér í lagi þar sem um er að ræða afskipti af ólögráða einstaklingi. Gögn málsins bera þó með sér að afskipti lögreglu af syni kvartanda voru í lögmætum tilgangi enda refsivert að sprengja flugelda á þessum tíma auk þess sem lýsingar á háttseminni benda til þess að af henni hafi getað stafað hætta fyrir almenning. Þá virðast viðbrögð kvartanda við afskiptum lögreglu hafa leitt til þess að gripið var í úlpu hans.“

Taldi nefndin, með hliðsjón af því hvernig málsatvikum var lýst í kvörtun og þeim gögnum sem hún hafði undir höndum, að afskipti lögreglu af drengnum hafi verið í samræmi við lögreglulög og barnaverndarlög og að ekki væri komin fram vísbending um mögulega ámælisverða eða refsiverða háttsemi starfsmanna lögreglu. Taldi nefndin því ekki tilefni til að aðhafast vegna erindisins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Mikill meirihluti Bandaríkjamanna telur Trump andlega óhæfan til að gegna embætti

Mikill meirihluti Bandaríkjamanna telur Trump andlega óhæfan til að gegna embætti
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Odee storkar bannfýsn skólans síns – Elsa úr Frozen, Rómeó og Júlía, Moby Dick og David Bowie á bannlista

Odee storkar bannfýsn skólans síns – Elsa úr Frozen, Rómeó og Júlía, Moby Dick og David Bowie á bannlista
Fréttir
Í gær

Læknir varar við Kaffistofu Samhjálpar – „Foreldrar hafa því eðlilega áhyggjur af öryggi barna sinna“

Læknir varar við Kaffistofu Samhjálpar – „Foreldrar hafa því eðlilega áhyggjur af öryggi barna sinna“
Fréttir
Í gær

Kristján Már lagði Reykjavíkurborg

Kristján Már lagði Reykjavíkurborg