fbpx
Miðvikudagur 06.maí 2026
Fréttir

Andri er sleginn: „Undirbúningurinn sem ég fékk var nánast verri en enginn“

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 6. maí 2026 10:30

Andri bendir á ýmsa vankanta í íslensku skólakerfi.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Andri Þorvarðarson, framhaldsskólakennari við Fjölbrautaskólann í Breiðholti, segist vera sleginn yfir fréttum um bága stöðu skólakerfisins. Morgunblaðið og mbl.is hafa fjallað um skýrslu OECD um stöðu íslenskra barna og kemur meðal annars fram að læsi barna á Íslandi hefur hrakar hraðar en á meðal barna annarra OECD-ríkja að meðaltali. Er gengið svo langt í skýrslunni að tala um að slakur árangur hér á landi ógni langtímahagvexti landsins og velferð landsmanna.

Andri skrifaði grein á vef Vísis í gær þar sem hann lýsti sinni skoðun og hann ræðir málið frekar í viðtali í Morgunblaðinu í dag.

„Ég er sleginn yfir þessari umfjöllun og þeirri stöðu sem ríkir, en á sama tíma kemur þetta því miður ekki á óvart. Þetta er þróun sem maður hefur áttað sig á að er í gangi, bæði út frá þessum alþjóðlegu könnunum og því sem maður hefur sjálfur séð og frétt frá öðrum kennurum,“ segir Andri við Morgunblaðið og bætir við að djúp gjá hafi myndast á milli menntaforystunnar og þeirra kennara sem starfa á gólfinu í skólum landsins.

Gagnrýnir menntaforystuna harðlega

Andri fór einmitt yfir þetta í grein sinni á Vísi í gær þar sem hann sagði að því miður ætti þetta ekki að koma neinum á óvart, nema kannski þeim sem teljast til forystufólks í menntasamfélaginu, til dæmis hjá Kennarasambandinu. Sagði hann í greininni að „yfirhylming menntaforystunnar“ á vanköntum skólakerfisins væri farin að valda gífurlegu tjóni.

„Sjálfur rak ég mig strax á þetta í kennaranáminu; ef ég á að vera heiðarlegur þá var undirbúningurinn sem ég fékk þar á bæ nánast verri en enginn. Þar fengum við að hlusta á endalausa fyrirlestra um hvað fyrirlestrar væru úrelt kennsluform,“ sagði hann og bætti við að í kennslustundum hafi lítill vilji verið fyrir því að veita kennaranemum hagnýtan undirbúning fyrir starfsferil sinn. Áhuginn væri meiri á háfleygum kennslufræðikenningum og æfingakennslan hafi í raun verið eini þáttur námsins sem kom honum að einhverju gagni í framtíðarstarfi hans.

Vita gagnslaust kerfi

Hann benti einnig á einkunnakerfið sem notast er við í grunnskólum og segir að kennarar, nemendur og foreldrar eigi bágt með að skilja það.

„Ég ætla ekki að kafa hér djúpt í kosti og galla bókstafakerfisins, sjálfur er ég tölustafamaður en bókstafirnir geta alveg skilað sínu ef vel er staðið að verki. En menntaforystan virðist hafa fengið þá flugu í höfuðið að hlutverk einkunna sé ekki að segja til um stöðu nemenda, heldur eigi þær að vera eins loðnar og ógagnsæjar og kostur er svo hægt sé að minnka einkunnabilið milli missterkra nema.“

Andri benti á að einkunnir eigi vissulega ekki að vera upphaf og endir alls skólastarfs og vandi skólakerfisins sé djúpstæðari en það hvernig einkunnir eru gefnar.

„En við verðum að hafa einhvern marktækan mælikvarða til að meta nemendur jafnt sem þær kennsluaðferðir sem notaðar eru. Einkunnakerfi með örfáum mælistikum, þar sem hin afskaplega teygjanlega einkunn B „er best“ og allt annað er bónus, er vita gagnslaust.“

Fá B en tala svo varla stakt orð í málinu

Andri segir æskilegt að hægt sé að bera saman stöðu nemenda milli skóla til að auðveldara sé að grípa inn í þar sem árangur er lakari. Hann gagnrýnir jafnframt andstöðu menntayfirvalda við samræmd próf og segir að þrátt fyrir vankanta þeirra hafi þau nýst sem mælikvarði. Að hans mati hafi kerfið verið lagt niður án þess að fullnægjandi lausn kæmi í staðinn.

Hann benti jafnframt á að ýmsir nemendur sem útskrifast með fínar einkunnir úr grunnskóla séu á engan hátt undirbúnir fyrir framhaldsskólanám.

„Jafnvel hefur borið á því að framhaldsskólar taki á móti nemendum sem útskrifast úr grunnskóla með B í íslensku en tala svo varla stakt orð í málinu! Í slíkum tilfellum hefði verið gott að hafa einhvers konar samræmd próf til að sannreyna íslenskugetu viðkomandi. Því framhaldsskólarnir hafa oft litla sem enga hugmynd um raunverulega námsgetu nýnema og eiga því erfitt með að veita þeim viðhlítandi stuðning.“

Grein sína endaði Andri á þeim orðum að forystufólk menntasamfélagsins virðist hafa gleymt sér í einhverjum „froðukenndum háskólafræðum“ og misst sjónar á grundvallarmarkmiði skólakerfisins sem er að gera unga fólkið okkar að nýtum samfélagsþegnum.

„Menntaforystan og fylgisveinar hennar virðast ekki vilja takast á við þann víðtæka vanda sem menntakerfið glímir við; hvort sem það er hin gagnslitla kennsla sem það veitir kennaranemum, eða því handónýta einkunnakerfi sem margir þeirra þurfa að notast við að útskrift lokinni. Ég held að það sé ekki orðum aukið að líkja hinu íslenska skólakerfi við skip sem hefur steytt á skeri; kannski er kominn tími til að fá nýtt fólk í brúna.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Einar segir skipulagsstefnu höfuðborgarsvæðisins mannfjandsamlega – „Engum hollt að búa við ónóga birtu“

Einar segir skipulagsstefnu höfuðborgarsvæðisins mannfjandsamlega – „Engum hollt að búa við ónóga birtu“
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Mikill meirihluti Bandaríkjamanna telur Trump andlega óhæfan til að gegna embætti

Mikill meirihluti Bandaríkjamanna telur Trump andlega óhæfan til að gegna embætti
Fréttir
Í gær

Nefnir þrjú dæmi um „þráláta þrjóskuheimsku“ Íslendinga – „Með dassi af sérhagsmunum og popúlískri pólitískri froðu“

Nefnir þrjú dæmi um „þráláta þrjóskuheimsku“ Íslendinga – „Með dassi af sérhagsmunum og popúlískri pólitískri froðu“
Fréttir
Í gær

Læknir varar við Kaffistofu Samhjálpar – „Foreldrar hafa því eðlilega áhyggjur af öryggi barna sinna“

Læknir varar við Kaffistofu Samhjálpar – „Foreldrar hafa því eðlilega áhyggjur af öryggi barna sinna“
Fréttir
Í gær

Notuðu þyrlu til að sækja ríkjan mann í krókódílsmaga

Notuðu þyrlu til að sækja ríkjan mann í krókódílsmaga
Fréttir
Í gær

Eigandi PJ Verk úrskurðaður í atvinnurekstrarbann – Tæmdi reikninga fyrirtækisins í aðdraganda gjaldþrots

Eigandi PJ Verk úrskurðaður í atvinnurekstrarbann – Tæmdi reikninga fyrirtækisins í aðdraganda gjaldþrots