

Fangi í ónefndu fangelsi hérlendis kvartaði nýlega við umboðsmann Alþingis yfir framkomu fangavarðar í sinn garð og raunar annarra fanga í fangelsinu. Vildi fanginn einnig meina að fangavörðurinn hefði komið í veg fyrir að hann fengi aðgang að peningum sem hann átti.
Kvörtunin var lögð fram í síðasta mánuði og lýtur að framkomu starfsmanns fangelsins en miðað við samhengi kvörtunarinnar getur viðkomandi varla verið annað en fangavörður. Nánar tiltekið laut kvörtunin bæði að ákveðnu atviki, þar sem fanginn sagði viðkomandi starfsmann hafa synjað sér um aðgang að umslagi með peningum í hans eigu, sem og framkomu starfsmannsins almennt í hans garð og annarra sem afplána í fangelsinu.
Í bréfi umboðsmanns til fangans segir að af kvörtuninni verði ekki ráðið að fanginn hafi komið athugasemdum sínum formlega á framfæri við aðra og fengið viðbrögð við þeim. Samkvæmt lögum um fullnustu refsinga, skipi forstjóri Fangelsismálastofnunar fangaverði auk þess sem sú stofnun hafi samkvæmt lögunum umsjón með rekstri fangelsa. Þá fari dómsmálaráðherra samkvæmt sömu lögum með yfirstjórn fangelsismála.
Meðal skilyrða þess að umboðsmaður Alþingis geti tekið kvörtun til athugunar sé að endanleg niðurstaða stjórnvalda í málinu liggi fyrir. Stjórnvöld skuli fá tækifæri til að leiðrétta ákvarðanir eða annað í störfum sínum, sem hugsanlega sé ekki í samræmi við lög, áður en leitað sé til aðila utan stjórnkerfis þeirra, eins og umboðsmanns Alþingis, með kvartanir. Fanginn geti leitað til Fangelsismálastofnunar og dómsmálaráðuneytisins með kvartanir sínar og þar með séu ekki lagaskilyrði til þess að umboðsmaður taki kvörtunina til frekari athugunar að svo stöddu. Kjósi fanginn að kvarta til þessara aðila og ef hann verði ósáttur við niðurstöðuna að því loknu geti hann leitað aftur til umboðsmanns.
Umboðsmaður lætur þess einnig getið að embættið fari með svokallað OPCAT-eftirlit með aðstæðum frelsissviptra, þar á meðal fanga, á almennum grunni. Við eftirlitið verði höfð hliðsjón af þeim athugasemdum sem komið sé á framfæri í kvörtuninni. Það hafi ekki áhrif á niðurstöðuna um að ekki séu skilyrði til að taka kvörtunina til frekari meðferðar að svo stöddu.