

LA Galaxy og Inter Miami eru sögð leiða kapphlaupið um að fá Casemiro til liðs við sig þegar samningur hans við Manchester United rennur út.
Samkvæmt TalkSport hefur brasilíski miðjumaðurinn vakið áhuga víða, þar á meðal í Sádi-Arabíu og Tyrklandi, en félög í MLS deildinni virðast standa sterkast að vígi á þessum tímapunkti.
Casemiro, sem er 34 ára gamall, hefur átt afar farsælan feril í Evrópu, þar á meðal með Real Madrid og Manchester United, en er nú talinn nálgast síðari hluta ferils síns.
LA Galaxy og Inter Miami hafa bæði lagt áherslu á að fá til sín reynslumikla leikmenn á undanförnum árum og líta á Casemiro sem stóran styrk.
Ef af félagaskiptunum verður gæti Casemiro bæst í hóp stórstjarna sem hafa fært sig yfir til MLS-deildarinnar á síðustu árum.