fbpx
Miðvikudagur 22.apríl 2026
433Sport

Metnaðarfullir Börsungar búnir að finna manninn sem þeir vilja í stað Rashford

Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 22. apríl 2026 10:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Barcelona ætlar sér ekki að kaupa Marcus Rashford í sumar en dreymir um að kaupa Julian Alvarez.

The Athletic fjallar um málið, en Rashford er á láni hjá Börsungum frá Manchester United og getur spænska stórliðið keypt hann í sumar fyrir 26 milljónir punda samkvæmt ákvæði í samningi hans.

Þó enski sóknarmaðurinn sé að eiga ágætis tímabil vill Barcelona ekki borga alla upphæðina, en talið er að United muni ekki lækka verðmiðann sinn.

Getty Images

Barcelona horfir því annað en í miklu dýrari leikmann, Alvarez hjá Atletico Madrid.

Alvarez hefur slegið í gegn síðan hann kom til Spánar frá Manchester City fyrir tæpum tveimur árum og hefur verið orðaður vði fleiri stórlið, til að mynda Arsenal.

Það er þó talið að Atletico vilji allt að 90 milljónir punda fyrir Alvarez, sem gæti reynst of stór biti fyrir Barcelona.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Samúel Kári skrifaði undir hjá Val í kvöld – Verður löglegur gegn FH

Samúel Kári skrifaði undir hjá Val í kvöld – Verður löglegur gegn FH
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Gátu ekki birt viðtal sem Hjörvar tók við stórstjörnu um helgina – „Mjög sérstakt að tala við hann“

Gátu ekki birt viðtal sem Hjörvar tók við stórstjörnu um helgina – „Mjög sérstakt að tala við hann“
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Carragher með áhugaverðar fréttir um framtíð Slot

Carragher með áhugaverðar fréttir um framtíð Slot
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Skella verðmiða á Gordon fyrir sumarið

Skella verðmiða á Gordon fyrir sumarið
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Þriðji markvörður Liverpool líklega í liðinu næstu vikurnar

Þriðji markvörður Liverpool líklega í liðinu næstu vikurnar