
Arne Slot heldur starfi sínu sem stjóri Liverpool ef hann skilar liðinu í Meistaradeildina í vor.
Jamie Carragher, fyrrum leikmaður Liverpool og sparkspekingur, segist hafa fengið veður af þessu í gegnum samtöl sem hann hefur átt.
Mikið hefur verið rætt og ritað um framtíð Slot eftir misheppnað tímabil Englandsmeistaranna. Liðið var í raun aldrei með í baráttunni um titilinn og er úr leik í öðrum keppnum.
Eftir síðustu umferð og sigur á Everton í grannaslag lítur þó út fyrir að Liverpool nái Meistaradeildarsæti.
„Miðað við það sem ég heyri bendir allt til þess að Slot verði áfram á næsta tímabili ef þeir ná markmiði sínu um að komast í Meistaradeildina,“ segir Carragher.