
Ruben Amorim gæti snúið aftur í ensku úrvalsdeildina strax í sumar, en hann er sagður á lista Crystal Palace yfir mögulega knattspyrnustjóra.
Amorim var rekinn frá Manchester United í janúar eftir 14 mánuði í starfi, þar sem hann var með aðeins 31,9 prósent sigrahlutfall.
Palace þarf að finna nýjan stjóra þar sem Oliver Glasner mun yfirgefa félagið í sumar þegar samningur hans rennur út.
Amorim ku vera einn af nokkrum kandídötum til að taka við, en einnig eru nefndir menn eins og Andoni Iraola, Thomas Frank og Robbie Keane.
Þá er Frank Lampard sagður efstur á óskalista Palace, eftir að hafa stýrt Coventry upp í úrvalsdeildina á dögunum.