
Leicester er fallið niður í ensku C-deildina, áðeins áratugi eftir að liðið varð Englandsmeistari.
Þetta varð ljóst með jafntefli liðsins við Hull, sem berst í efri hluta deildarinnar, í B-deildinni í kvöld.
Þetta er þungt högg fyrir Leicester. Sex stig voru dregin af félaginu vegna brota á fjárhagsreglum fyrr á leiktíðinni og setti það liðið í erfiða stöðu.
Fallið er hátt á skömmum tíma. Leicester komst í 8-liða úrslit Meistaradeildarinnar árið eftir að liðið vann úrvalsdeildina. Þá féll liðið aðeins úr deild þeirra bestu fyrir tæpu ári síðan.
Það varð einnig ljóst í kvöld að Coventry, sem hafði þegar tryggt sig upp í efstu deild, vinnur B-deildina.
Tonight’s result confirms our relegation to Sky Bet League One. pic.twitter.com/IsmoQbPOru
— Leicester City (@LCFC) April 21, 2026