fbpx
Mánudagur 11.maí 2026
433Sport

Hjólar harkalega í Garnacho – „Kannski reyndu þeir það en hann hlustaði ekki“

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 21. apríl 2026 13:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nicky Butt lét Alejandro Garnacho heyra það í nýlegu viðtali og telur Manchester United hafa gert rétt með að selja hann.

Butt, sem var akademíustjóri United þegar Garnacho kom til félagsins, sagði leikmanninn hafa haft ákveðið viðhorf frá upphafi. „Hann var alltaf svolítið fjarlægur og hafði mjög hátt álit á sjálfum sér,“ sagði Butt.

Hann gagnrýndi einnig hversu hratt Garnacho fékk stjörnustöðu. „Hann komst í aðalliðið og fékk stjörnustöðu allt of fljótt. Einhver í kringum liðið hefði átt að halda honum niðri, kannski reyndu þeir það en hann hlustaði ekki.“

Butt hrósaði þó hæfileikum hans að einhverju leyti. „Hann skoraði magnaða hjólhestaspyrnu, það var frábært,“ sagði hann, en bætti við að það hefði kannski aukið væntingar og pressu of snemma.

Hann telur að Anthony Elanga hafi á sínum tíma sýnt meiri fyrirheit innan akademíunnar. Garnacho, sem nú er hjá Chelsea, hefur átt erfitt uppdráttar og hefur gagnrýni Butt vakið talsverða athygli.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Fyrrum úrvalsdeildardómari tjáir sig um atvikið umdeilda – Segir tvo hafa gerst brotlega

Fyrrum úrvalsdeildardómari tjáir sig um atvikið umdeilda – Segir tvo hafa gerst brotlega
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Arnar botnaði lítið í kollegum sínum – „Mér finnst þetta smá virðingarleysi“

Arnar botnaði lítið í kollegum sínum – „Mér finnst þetta smá virðingarleysi“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Arnar útskýrir hvers vegna hann dembdi sér í stjórnmálin og valið á flokki – „Ég á samleið með þeim í mörgu“

Arnar útskýrir hvers vegna hann dembdi sér í stjórnmálin og valið á flokki – „Ég á samleið með þeim í mörgu“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Nýliðarnir leiddir til slátrunnar í Víkinni

Nýliðarnir leiddir til slátrunnar í Víkinni
433Sport
Fyrir 2 dögum

City skoðar það að kaupa Vinícius Júnior í sumar

City skoðar það að kaupa Vinícius Júnior í sumar
433Sport
Fyrir 2 dögum

Klárir með tæpa 15 milljarða ef framherjinn frá Argentínu er til sölu

Klárir með tæpa 15 milljarða ef framherjinn frá Argentínu er til sölu