fbpx
Laugardagur 16.maí 2026
433Sport

Þetta er sögð hin „ótrúlega“ upphæð sem fer í Garðabæinn fyrir Samúel Kára

Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 22. apríl 2026 11:16

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Valur er að kaupa Samúel Kára Friðjónsson frá Stjörnunni og kostar hann sitt.

Dr. Football sagði fyrst frá þessum yfirvofandi skiptum og samkvæmt heimildum 433.is verður Samúel Kári kominn með leikheimild gegn FH í Bestu deildinni á morgun.

Kristján Óli Sigurðsson segir í Þungavigtinni að Samúel Kári kosti Val 16 milljónir króna. Það gerir hann að næstdýrasta leikmanni sem keyptur er innan félaga á Íslandi, á eftir Gylfa Þór Sigurðssyni.

„16 milljónir verða millifærðar upp í Garðabæ. Þetta er ótrúleg upphæð, næsthæsta upphæð sem leikmaður er keyptur á innanlands.“

Hinn þrítugi Samúel Kári gekk í raðir Stjörnunnar er hann kom heim úr atvinnumennsku fyrir síðustu leiktíð.

Samúel Kári var í byrjunarliði Stjörnunnar í fyrstu umferð Bestu deildarinnar gegn KA en var á bekknum og kom inn á sem varamaður í annarri umferð gegn FH.

Stjarnan er með sex stig eftir tvo leiki í Bestu deildinni en Valur með þrjú.

Uppfært kl. 11:19 – Skiptin hafa verið staðfest af Val og Stjörnunni

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Barcelona vill setjast niður við samningaborðið

Barcelona vill setjast niður við samningaborðið
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Íþróttavikan: Lífsnauðsynlegir bikarsigrar og City heldur pressunni á Arsenal

Íþróttavikan: Lífsnauðsynlegir bikarsigrar og City heldur pressunni á Arsenal
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Þetta er samningurinn sem United er búið að bjóða Carrick – Búist við að hann skrifi undir um helgina

Þetta er samningurinn sem United er búið að bjóða Carrick – Búist við að hann skrifi undir um helgina
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Hefur aldrei dottið í hug að segja upp störfum á Anfield

Hefur aldrei dottið í hug að segja upp störfum á Anfield
433Sport
Í gær

Arsenal tilbúið að slást við United í sumar

Arsenal tilbúið að slást við United í sumar
433Sport
Í gær

Kynþokkafyllsta kona Bretlands gerir allt vitlaust með léttklæddum myndum

Kynþokkafyllsta kona Bretlands gerir allt vitlaust með léttklæddum myndum