
Paul Pogba telur að Bruno Fernandes gæti unnið Ballon d’Or ef hann spilaði fyrir annað lið en Manchester United.
Pogba, sem er auðvitað fyrrum leikmaður United sjálfur, segir umræðuna um Fernandes minna á það sem hann upplifði sjálfur á tímanum á Old Trafford.
„Ég er ekki að bera okkur saman, en getur Bruno gert meira en hann er að gera núna? Fyrir mér væri hann í topp þremur í Ballon d’Or ef hann spilaði fyrir Manchester city,“ segir Frakkinn.
Fernandes hefur átt frábært tímabil tölfræðilega, bæði hvað varðar mörk og stoðsendingar, en Pogba bendir á að skortur á titlum hafi áhrif á hvernig leikmenn eru metnir.
„Þegar þú vinnur ekki titla, þá er ekki talað um þig, svona er fótboltinn.“
Pogba segir Fernandes hafa mátt þola ósanngjarna gagnrýni á tíma sínum hjá United.
„Hann getur allt. Fólk þarf alltaf að finna einhvern til að gagnrýna hjá United, en fótboltamenn vita að hann er toppleikmaður.“