
Barcelona ætlar sér ekki að kaupa Marcus Rashford í sumar en dreymir um að kaupa Julian Alvarez.
The Athletic fjallar um málið, en Rashford er á láni hjá Börsungum frá Manchester United og getur spænska stórliðið keypt hann í sumar fyrir 26 milljónir punda samkvæmt ákvæði í samningi hans.
Þó enski sóknarmaðurinn sé að eiga ágætis tímabil vill Barcelona ekki borga alla upphæðina, en talið er að United muni ekki lækka verðmiðann sinn.

Barcelona horfir því annað en í miklu dýrari leikmann, Alvarez hjá Atletico Madrid.
Alvarez hefur slegið í gegn síðan hann kom til Spánar frá Manchester City fyrir tæpum tveimur árum og hefur verið orðaður vði fleiri stórlið, til að mynda Arsenal.
Það er þó talið að Atletico vilji allt að 90 milljónir punda fyrir Alvarez, sem gæti reynst of stór biti fyrir Barcelona.