fbpx
Miðvikudagur 22.apríl 2026
433Sport

Valur staðfestir komu Samúels Kára

Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 22. apríl 2026 11:24

Mynd: Valur

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Valur hefur staðfest komu Samúels Kára Friðjónssonar frá Stjörnunni. Hann gerir samning út tímabilið 2028.

Samúel Kári er þrítugur og kom heim úr atvinnumennsku fyrir síðustu leiktíð. Hefur hann spilað stóra rullu hjá Stjörnunni en var ekki í byrjunarliðinu í síðasta leik gegn FH.

Hans fyrsti leikur með Val verður einmitt gegn FH á morgun. Valsarar hafa þrjú stig í Bestu deildinni eftir tvo leiki.

Tilkynning Vals
Knattspyrnudeild Vals hefur fest kaup á miðjumanninum Samúel Kára Friðjónssyni frá Stjörnunni. Hann gerir samning við Val út tímabilið 2028. Kaupverðið er trúnaðarmál.

Samúel Kári, sem er þrítugur, hefur verið einn af allra bestu miðjumönnum Bestu deildarinnar frá því hann sneri heim úr atvinnumennsku fyrir tímabilið 2024. Auk þess á hann að baki farsælan feril sem atvinnumaður erlendis og hefur leikið með íslenska landsliðinu.

Hermann Hreiðarsson, þjálfari Vals:
„Samúel er frábær leikmaður, heilbrigður karakter á flottum aldri. Hann hefur þau persónueinkenni sem ég vil sjá á miðjunni hjá okkur og passar mjög vel inn í það sem við erum að byggja upp. Með þessari viðbót er liðið farið að líta virkilega vel út hjá okkur og ég hlakka mikið til.“

Gareth Owen, yfirmaður knattspyrnumála hjá Val:
„Líkt og fram hefur komið erum við í Val á ákveðinni vegferð þar sem við erum að horfa meira til ungra leikmanna. Það er mikilvægt að hafa í huga að þetta þarf auðvitað að vera góð blanda með reyndari mönnum. Þegar leikmaður með þá eiginleika og gæði sem Samúel býr yfir býðst þá er allt kapp lagt á að landa honum. Hann tikkar í mörg box hjá okkur og er hugsaður sem lykilmaður inni á miðjunni í því verkefni sem er framundan. Samúel er þekkt stærð í deildinni og mikill stríðsmaður sem mun styrkja liðið strax í baráttunni.“

Við bjóðum Samúel Kára velkominn í Val.

Valur tekur á móti FH að Hlíðarenda annað kvöld. Ársmiðasalan er hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Samúel Kári skrifaði undir hjá Val í kvöld – Verður löglegur gegn FH

Samúel Kári skrifaði undir hjá Val í kvöld – Verður löglegur gegn FH
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Gátu ekki birt viðtal sem Hjörvar tók við stórstjörnu um helgina – „Mjög sérstakt að tala við hann“

Gátu ekki birt viðtal sem Hjörvar tók við stórstjörnu um helgina – „Mjög sérstakt að tala við hann“
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Carragher með áhugaverðar fréttir um framtíð Slot

Carragher með áhugaverðar fréttir um framtíð Slot
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Skella verðmiða á Gordon fyrir sumarið

Skella verðmiða á Gordon fyrir sumarið
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Þriðji markvörður Liverpool líklega í liðinu næstu vikurnar

Þriðji markvörður Liverpool líklega í liðinu næstu vikurnar