fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Pressan

Ný hótun frá Rússlandi beinist að Finnlandi og Eystrasaltsríkjum

Pressan
Föstudaginn 17. apríl 2026 18:00

Sergei Shoigu. Mynd:Kreml.ru

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sergei Shoigu, ritari öryggisráðs Rússlands, hefur varað Finnland og Eystrasaltsríkin við að Rússar gæti gripið til sjálfsvarnar ef úkraínskar drónárásir á rússneskt landsvæði halda áfram að fara fram í gegnum lofthelgi þeirra.

Samkvæmt rússnesku ríkisfréttastofunni TASS sagði Shoigu að yfirvöld í Moskvu áskildu sér „rétt til sjálfsvarnar“ við slíkar aðstæður. Ummælin koma í kjölfar fyrri viðvörunar frá rússneskum yfirvöldum um að aukinn stuðningur Evrópuríkja við drónaárásir Úkraínu gæti haft „ófyrirsjáanlegar afleiðingar“.

Shoigu, sem var varnarmálaráðherra þegar Rússland hóf innrás sína í Úkraínu árið 2022, vísaði til atvika þar sem drónar hafa hrapað í Finnlandi og Eystrasaltsríkjunum í tengslum við árásir Úkraínu á Ust-Luga, stóra rússneska höfn við Finnska flóann.

Á móti hefur Andrii Sybiha, utanríkisráðherra Úkraínu, haldið því fram að rússnesk yfirvöld hafi vísvitandi beint drónum í átt að Finnlandi og Eystrasaltsríkjunum til að auka spennu á svæðinu.

Shoigu sakaði jafnframt, án þess að leggja fram gögn, Úkraínu um að hafa í auknum mæli beitt drónum gegn Rússlandi í gegnum lofthelgi Finnlands og Eystrasaltsríkjanna. Hann setti fram tvær mögulegar skýringar: annars vegar að vestræn loftvarnarkerfi væru ófullnægjandi, og hins vegar að viðkomandi ríki leyfðu slíka notkun lofthelgi sinnar viljandi.

„Í síðara tilvikinu myndi 51. grein stofnsáttmála Sameinuðu þjóðanna um rétt ríkja til sjálfsvarnar taka gildi,“ sagði Shoigu.

Stjórnvöld í Eystrasaltsríkjunum hafa hafnað ásökununum harðlega, kallað þær rangar og neitað því að lofthelgi þeirra hafi verið notuð til árása gegn Rússlandi.

Rússnesk yfirvöld hafa ítrekað varað við mögulegum afleiðingum stuðnings Evrópuríkja við Úkraínu frá því að stríðið hófst. Fyrr á þessu ári varaði Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands, ásamt öðrum leiðtogum Evrópu, við því að Rússland gæti verið að undirbúa sig fyrir möguleg hernaðarátök við Evrópu fyrir árið 2027.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 20 klukkutímum

Prestur ákærður fyrir manndráp eftir að maður drukknaði þegar hann var skírður

Prestur ákærður fyrir manndráp eftir að maður drukknaði þegar hann var skírður
Pressan
Í gær

Repúblikanar streyma að útganginum og það ógnar Trump

Repúblikanar streyma að útganginum og það ógnar Trump
Pressan
Í gær

Söngvarinn handtekinn vegna rotnandi líks táningsstúlku sem fannst í Teslu-bifreið hans

Söngvarinn handtekinn vegna rotnandi líks táningsstúlku sem fannst í Teslu-bifreið hans
Pressan
Í gær

Íranir opna Hormússund og olíuverð lækkar – Trump glaður

Íranir opna Hormússund og olíuverð lækkar – Trump glaður
Pressan
Fyrir 3 dögum

Aflimaður fyrir neðan nafla eftir hræðilegt slys – Grætur bara yfir einu

Aflimaður fyrir neðan nafla eftir hræðilegt slys – Grætur bara yfir einu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ný varnarlína Evrópu: Plan B í vinnslu ef Trump yfirgefur NATO

Ný varnarlína Evrópu: Plan B í vinnslu ef Trump yfirgefur NATO