fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Pressan

Ný gögn varpa ljósi á harmleikinn: Hvað gerðist dagana áður?

Pressan
Föstudaginn 17. apríl 2026 09:30

Justin og Cerina Fairfax.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrrverandi vararíkisstjóri Virginíuríkis í Bandaríkjunum, Justin Fairfax, skaut eiginkonu sína til bana og svipti sig síðan lífi á heimili þeirra í Fairfax-sýslu fyrr í vikunni. Nú hafa bandarískir fjölmiðlar varpað frekara ljósi á harmleikinn og því sem átti sér stað dagana á undan.

Í umfjöllun Washington Post kemur fram að atburðurinn í vikunni hafi átt sér stað aðeins nokkrum dögum eftir að dómari úrskurðaði að eiginkona hans, Cerina Fairfax, skyldi fá aðalforræði yfir tveimur börnum þeirra. Í sama úrskurði var henni veitt umráð yfir fjölskylduheimilinu í Annandale, og Fairfax gert að flytja út fyrir lok aprílmánaðar.

Sjá einnig: Harmleikur á heimili fyrrverandi vararíkisstjóra í hatrammri skilnaðardeilu

Samkvæmt lögreglu skaut Fairfax, sem var 47 ára, eiginkonu sína ítrekað í kjallara hússins snemma í gærmorgun að bandarískum tíma áður en hann svipti sig lífi á efri hæð hússins. Unglingssonur þeirra hringdi í neyðarlínuna 911, og voru bæði börn þeirra heima þegar atburðurinn átti sér stað.

Dómskjöl sýna að hjónabandið hafði verið í miklum erfiðleikum um nokkurt skeið.

Samkvæmt gögnum sem bandarískir fjölmiðlar vitna til hafði Cerina lýst hegðun eiginmanns síns sem óstöðugri og nefndi meðal annars daglega og mikla áfengisneyslu, einangrun og erfið samskipti innan fjölskyldunnar. Hún hélt því einnig fram að hann hefði varið fé sem ætlað var til tómstundaiðkunar barna þeirra í vopnakaup.

Úrskurður dómarans kom í kjölfar margra mánaða ágreinings, þar sem fram kom að spenna á heimilinu hefði verið „mjög mikil um langan tíma“. Málið átti að koma til frekari meðferðar fyrir dómi eftir helgi.

Justin Fairfax þótti á sínum tíma vaxandi stjarna innan Demókrataflokksins og var talinn eiga möguleika á að bjóða sig fram til ríkisstjóra. Pólitískur ferill hans hrundi hins vegar eftir að tvær konur sökuðu hann um kynferðisbrot árið 2019, ásakanir sem hann neitaði.

Í dómsgögnum kemur fram að Fairfax hafi áður glímt við áfengisvanda og félagslega einangrun, en náð bata eftir misheppnað framboð til embættis ríkissaksóknara árið 2013. Eftir ásakanirnar árið 2019 hafi andleg líðan hans hins vegar versnað á ný og þátttaka hans í daglegu lífi fjölskyldunnar minnkað verulega.

NBC News ræddi í gær við nágranna fjölskyldunnar, Peter Demeo, sem segir að atburðurinn hafi komið honum í opna skjöldu þó ljóst hefði verið að hjónin ættu í samskiptaerfiðleikum.

„Ég er bara agndofa. Í sjokki, því ég þekkti þau,“ sagði hann í viðtalinu. Þó að hjónin hefðu átt í erfiðleikum segist hann aldrei hafa ímyndað sér málið myndi enda með þeim hætti sem raun varð.

„Svona lagað er alltaf átakanlegt, og maður hugsar sérstaklega til barnanna, því framtíð þeirra hefur gjörbreyst,“ sagði hann.


Ef ein­stak­ling­ar glíma við sjálfs­vígs­hugs­an­ir er bent á Hjálp­arsíma Rauða kross­ins 1717 og netspjall Rauða krossins 1717.is. Opið allan sólarhringinn. Einnig má hafa sam­band við Píeta-sam­tök­in sem veita ókeyp­is ráðgjöf í síma 552-2218, allan sólarhringinn. Netspjall Heilsuveru þar sem svarar hjúkrunarfræðingur er líka opið frá kl.8-22 alla daga. Fyrir þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi má fá stuðning í sorg hjá Sorgarmiðstöð og hjá Pieta samtökunum.


Úrræði við ofbeldi í nánu sambandi

Neyðarlínan er með ítarlegar leiðbeiningar bæði um það hvað ofbeldi í nánu sambandi felur í sér og hvert er hægt að leita ef maður sjálfur eða einhver sem maður þekkir er beittur ofbeldi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Repúblikanar streyma að útganginum og það ógnar Trump

Repúblikanar streyma að útganginum og það ógnar Trump
Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Ellilífeyrisþegi brást illa við dróna og skaut hann niður

Ellilífeyrisþegi brást illa við dróna og skaut hann niður
Pressan
Í gær

Ný hótun frá Rússlandi beinist að Finnlandi og Eystrasaltsríkjum

Ný hótun frá Rússlandi beinist að Finnlandi og Eystrasaltsríkjum
Pressan
Í gær

Íranir opna Hormússund og olíuverð lækkar – Trump glaður

Íranir opna Hormússund og olíuverð lækkar – Trump glaður
Pressan
Fyrir 3 dögum

Læknir gerði skelfileg mistök á skurðarborðinu

Læknir gerði skelfileg mistök á skurðarborðinu
Pressan
Fyrir 4 dögum

Flugfarþegar í áfalli yfir „furðulegri“ sætaskipan barna – „Hvað í ósköpunum?“

Flugfarþegar í áfalli yfir „furðulegri“ sætaskipan barna – „Hvað í ósköpunum?“