
Þetta staðfestir lögreglustjórinn í Fairfax-sýslu, Kevin Davis, í samtali við AP.
Samkvæmt lögreglu voru tvö unglingsbörn hjónanna inni á heimilinu þegar harmleikurinn átti sér stað. Sonur þeirra hringdi í neyðarlínuna, 911, skömmu eftir miðnætti. Þegar lögregla kom á vettvang fundust hjónin látin inni í húsinu. Bráðabirgðarannsókn bendir til þess að Justin hafi fyrst notað byssuna á eiginkonu sína áður en hann beindi henni að sjálfum sér.
Lögregla segir að atvikið tengist langvinnum deilum í tengslum við erfiðan og flókinn skilnað.
Að sögn Davis höfðu myndavélar verið settar upp víða um heimilið í tengslum við skilnaðarmálið og hafa rannsóknarlögreglumenn farið yfir myndefni úr þeim.
„Það er hræðilegt fyrir börnin að missa báða foreldra sína, og enn sorglegra að þau hafi verið inni á heimilinu þegar þetta gerðist,“ sagði Davis á blaðamannafundi.
Justin Fairfax var Demókrati og gegndi embætti vararíkisstjóra Virginíu frá 2018 til 2022 undir stjórn Ralph Northam. Hann bauð sig einnig fram til embættis ríkisstjóra árið 2021, en án árangurs. Að loknum stjórnmálaferli sneri hann aftur til lögfræðistarfa, en eiginkona hans starfaði sem tannlæknir.
Fairfax vakti mikla athygli árið 2019 þegar fram komu ásakanir gegn honum um kynferðisbrot.
Ef einstaklingar glíma við sjálfsvígshugsanir er bent á Hjálparsíma Rauða krossins 1717 og netspjall Rauða krossins 1717.is. Opið allan sólarhringinn. Einnig má hafa samband við Píeta-samtökin sem veita ókeypis ráðgjöf í síma 552-2218, allan sólarhringinn. Netspjall Heilsuveru þar sem svarar hjúkrunarfræðingur er líka opið frá kl.8-22 alla daga. Fyrir þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi má fá stuðning í sorg hjá Sorgarmiðstöð og hjá Pieta samtökunum.
Úrræði við ofbeldi í nánu sambandi
Neyðarlínan er með ítarlegar leiðbeiningar bæði um það hvað ofbeldi í nánu sambandi felur í sér og hvert er hægt að leita ef maður sjálfur eða einhver sem maður þekkir er beittur ofbeldi.