fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Fókus

Hasarmyndastjarna stígur óvænt skref

Fókus
Fimmtudaginn 16. apríl 2026 16:30

Jackie Chan. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jackie Chan sem löngu er orðinn heimsfrægur fyrir leik sinn í hasarmyndum, í bæði Hong Kong og Bandaríkjunum, mun síðar á árinu stíga nýtt skref á ferlinum, sem kann að koma mörgum sem þekkja helst til hans sem hasarmyndastjörnu á óvart, en hann mun leikstýra uppsetningu á hinni sígildu óperu Turandot eftir ítalska tónskáldið Giacomo Puccini.

Breska útvarpsstöðin Classic FM, sem sérhæfir sig í sígildri tónlist, greinir frá þessu.

Þetta er í fyrsta sinn sem Chan leikstýrir uppsetningu á óperu en hann hefur leikstýrt á annan tug kvikmynda.

Um er að ræða opnunarsýningu á sérstakri Puccini-hátíð sem fram fer í 72. sinn, í bænum Torre Del Lago, í Toscana- héraði á Ítalíu, í júlí næstkomandi. Puccini dvaldi langdvölum í bænum og samdi mörg verka sinna þar.

Chan mun setja sinn svip á hið sígilda verk en hinar kínversku bardagalistir Tai Chi og Kung Fu munu skipa sinn sess í sýningunni en eins og kunnugt er koma bardagalistir fyrir í mörgum ef ekki flestum kvikmyndum Chan.

Kína er einmitt sögusvið Turandot en óperan er sú síðasta sem Puccini samdi áður en hann lést árið 1924. Verkinu var þá reyndar ólokið en Franco Alfano, landi Puccini, lauk við óperuna.

Alþjóðlegur hópur óperusöngvara fer með hlutverk í uppsetningu Chan en einna þekktastur í hópnum er fransk-ítalski tenórinn Roberto Alagna en hann hefur verið í aðalhlutverkum í öllum helstu óperuhúsum heims.

Á Facebook-síðu Classic Fm grípa sumir til þess að hæðast að þessu nýja hlutverki hasarmyndastjörnunnar. Í einni athugasemd er hins vegar bent á að Jackie Chan stundaði á sínum yngri árum nám við leiklistarakademíu Kína og að ópera hafi verið hluti af náminu.

Ljóst er þó að margir eru hissa en meðal þeirra er íslenskur áhugamaður um sígilda tónlist sem segist á samfélagsmiðlum ekki hafa haft hugmynd um þennan óperuáhuga hasarmyndastjörnunnar.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

8 skotheld ráð Ragnhildar til að bæta svefninn – „Því minna sem þú sefur, því fyrr deyrðu“

8 skotheld ráð Ragnhildar til að bæta svefninn – „Því minna sem þú sefur, því fyrr deyrðu“
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Einhver lest sem við settum í gang og fór algjörlega út af sporinu“

„Einhver lest sem við settum í gang og fór algjörlega út af sporinu“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Rúrik hefur látið 5,5 milljóna verðlaunafé renna til SOS – Framburður á firði og Vatnajökli skiluðu sigri í síðustu keppni

Rúrik hefur látið 5,5 milljóna verðlaunafé renna til SOS – Framburður á firði og Vatnajökli skiluðu sigri í síðustu keppni
Fókus
Fyrir 4 dögum

Leikkona sakar Katy Perry um kynferðisbrot – „Nuddaði viðbjóðslegu píkunni sinni á andlitið á mér“

Leikkona sakar Katy Perry um kynferðisbrot – „Nuddaði viðbjóðslegu píkunni sinni á andlitið á mér“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Þriðja dóttirin fædd

Þriðja dóttirin fædd
Fókus
Fyrir 5 dögum

Raunveruleikastjarnan látin aðeins þrítug að aldri

Raunveruleikastjarnan látin aðeins þrítug að aldri