fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Fókus

Hver bjargar jólunum í Borgarleikhúsinu?

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 16. apríl 2026 11:42

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjölskyldusöngleikurinn Þegar Trölli stal jólunum verður frumsýndur í nóvember næstkomandi á Stóra sviði Borgarleikhússins. Leikstjóri sýningarinnar er Valur Freyr Einarsson og ásamt glæsilegum hópi leikara mun stór barnahópur fara með hlutverk í sýningunni. 

Borgarleikhúsið auglýsir eftir kraftmiklum og skapandi krökkum fæddum á árunum 2012-2017 til að taka þátt í þessu töfrandi jólaævintýri.

Þau sem þekkja söguna um Trölla vita að börnin gegna lykilhlutverki í ævintýrinu sígilda. „Við upplifum söguna í gegnum þau. Ævintýrið um Trölla sem stelur jólunum lifnar ekki við án barna sem elska jólin” segir Valur Freyr leikstjóri söngleiksins. „Við leitum að kraftmiklum og fjölbreyttum hópi barna sem geta sungið og leikið og hafa ríkt ímyndunarafl. Við hvetjum börn af öllum kynjum og ólíkum uppruna til að sækja um í prufunum“.

Valur Freyr Einarsson leikstjóri

Skráning í prufur fer fram á borgarleikhus.is. Opið er fyrir skráningar til og með 20. apríl og prufurnar fara fram í Borgarleikhúsinu á bilinu 1.- 21. maí. Æfingar hefjast 26. maí og frumsýning er í nóvember 2026.

Söngleikurinn Þegar Trölli stal jólunum er byggður er á hinu sívinsæla ævintýri Dr. Seuss frá árinu 1957. Sagan hefur verið útfærð á ótal vegu en þekktasta útfærslan er líklega kvikmyndin How the Grinch stole Christmas sem kom út árið 2000 og skartaði gamanleikaranum og stjórstjörnunni Jim Carrey í hlutverki Trölla (Grinch). Flestir Íslendingar þekkja söguna og er kvikmyndin orðin rótgróin jólahefð á mörgum heimilum.

Þegar Trölli stal jólunum verður frumsýndur í nóvember 2026 og verður það Evrópufrumsýning á söngleiknum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Áhrifavaldur varð fyrir vonbrigðum með Ísland – „Hvað Ísland gerði til að laða að sér þetta marga ferðamenn er rannsóknarefni“

Áhrifavaldur varð fyrir vonbrigðum með Ísland – „Hvað Ísland gerði til að laða að sér þetta marga ferðamenn er rannsóknarefni“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Netverjum misboðið yfir myndum sem leikkonan birti af sér og syni sínum – „Þetta verður á netinu um ókomna tíð“

Netverjum misboðið yfir myndum sem leikkonan birti af sér og syni sínum – „Þetta verður á netinu um ókomna tíð“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Erna Hrund selur í Skektuvogi – Segist til í að skilja eitthvað eftir í baðskápunum fái hún tilboð

Erna Hrund selur í Skektuvogi – Segist til í að skilja eitthvað eftir í baðskápunum fái hún tilboð
Fókus
Fyrir 4 dögum

Trúði því ekki þegar konur sögðu hann kyntákn

Trúði því ekki þegar konur sögðu hann kyntákn
Fókus
Fyrir 6 dögum

Ólöf greinir frá góðverki ársins – „Auðvitað ekki stætt á því að standa í vegi örlaganornarinnar“

Ólöf greinir frá góðverki ársins – „Auðvitað ekki stætt á því að standa í vegi örlaganornarinnar“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Hefur litlar áhyggjur af því að framhaldsskólanemar lesi ekki lengur Njálu – „Ég man enn hvað mér fannst hún leiðinleg við fyrsta lestur“

Hefur litlar áhyggjur af því að framhaldsskólanemar lesi ekki lengur Njálu – „Ég man enn hvað mér fannst hún leiðinleg við fyrsta lestur“
Fókus
Fyrir 1 viku

Netverjum gróflega misboðið yfir steypiboðinu sem Bonnie Blue ætlar að halda – „Getur einhver hringt í barnavernd?“

Netverjum gróflega misboðið yfir steypiboðinu sem Bonnie Blue ætlar að halda – „Getur einhver hringt í barnavernd?“
Fókus
Fyrir 1 viku

Sting er með kenningu um hvaðan eitruð karlmennska kemur

Sting er með kenningu um hvaðan eitruð karlmennska kemur