fbpx
Laugardagur 18.apríl 2026
Fókus

Hafdís Björg opnar sig upp á gátt: „Ég var hræddari við kommentakerfið en ofbeldismanneskjuna“

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 16. apríl 2026 10:30

Hafdís Björg Kristjánsdóttir. Mynd: Instagram.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég fór ekki út úr húsi í tvo mánuði, nóvember og desember voru ógeðslegir mánuðir. Mamma flutti inn á mig, eldaði og sá um allt. Síðan labbaði ég niður einn daginn, brotnaði niður og bað mömmu fyrirgefningar. Hún leyfði mér bara að ganga í gegnum þetta. Ég er ekki hrædd við hann í dag. Það vita þetta allir. Eina sem mér finnst sorglegt er að hann er sannfærandi, hann nær enn að plata stelpur að hann sé saklaus. Hann er stórhættulegur en ég er laus við alla hræðslu,“

segir Haf­dís Björg Kristjáns­dótt­ur sem er gest­ur Krist­ín­ar Sifjar Björg­vins­dótt­ur í Dag­mál­um. 

Í viðtalinu ræðir Hafdís Björg op­in­skátt um lífs­reynslu sína, allt frá far­sæl­um fit­n­ess­ferli til áfalla sem hún hef­ur orðið fyr­ir og hafa sett mark sitt á líf henn­ar, eins og vin­konum­iss­ir sem reynd­ist henni mjög sár og erfiður sem og of­beldi í nánu sam­bandi sem hún varð fyr­ir og er enn fást við af­leiðing­ar af. Þá ræðir Haf­dís einnig upprisu sína og þá veg­ferð sem hún er á við að end­ur­heimta ör­yggi, styrk, ham­ingju og vellíðan.

Segir virka í athugasemdum samfélagshóp sem hún skilur ekki

Aðspurð um hvernig það sé að vera opinber manneskja í sviðsljósinu sérstaklega þegar kemur að kommentakerfum segir Hafdís Björg:

„Þetta er náttúrulega bara samfélagshópur sem ég skil ekki. Vinir mínir og vinkonur senda oft ef að koma fréttir, það koma svona fréttir um ekki neitt, bara af því þetta er um mig. Ég er á stuttbuxum úti, ég er að taka lest. Fólk elskar að hata mig, ég held að ein af ástæðum þess að fréttir um mig eru svona vinsælar er af því fólk elskar að lesa kommentin. Drulluskitan sem kemur þarna. Þetta kemur alltaf á óvart, en ég er bara löngu hætt að lesa þetta, bara fyrir mína andlegu heilsu ætla ég ekki að leggja í það. Eins ljótt og það er þá er maður búin að venjast þessu.“

Hafdís Björg segist eiga fjölskyldu og vini sem lesi athugasemdirnar og taki þær inn á sig.

Opnaði sig um heimilisofbeldi

Fyrir nokkru síðan steig Hafdís Björg fram og sagðist hafa verið beitt ofbeldi í sambandi með Kristjáni Einari Sigurbjörnssyni, sem oft er kallaður Kleini.

Sjá einnig: Hafdís Björg opnar sig frekar um heimilisofbeldið – „Fólk getur ekki sett sig í þessi spor ef það hefur ekki verið þarna“

„Það hræddi mig meira, ekki viðbrögðin hans, heldur kommentakerfin. Það er það sem mér finnst ógeðslega sturlað að ég var hræddari við kommentakerfið en ofbeldismanneskjuna.“

Kristín Sif segir að sér hafi fundist erfitt að lesa að Hafdís Björg kenni sjálfri sér um að aðrar konur hafi orðið fyrir ofbeldi af hendi sama manns. „Af hverju líður þér svona? Af hverju leið þér eins og það væri þín sök að annar einstaklingur hefði orðið fyrir ofbeldi af hendi sama manns?“

„Ég veit ekki af hverju það helltist svona yfir mig. Ég fékk strax símtal um þetta og svo fylltust fréttamiðlar um atvikið fyrir norðan. Þetta er ekki eina stelpan sem hefur lent í honum eftir okkar skilnað. Ég bara tók ábyrgð á öllu sem maðurinn gerði, bæði í okkar sambandi og eftir á. Mér leið eins og ég væri að sleppa villidýri lausu, ég ætti frekar bara að vera með hann í ól. Ég sleppti honum út og nú eru það bara allar hinar sem eru að þjást.“

Var lengi að átta sig á að ábyrgðin væri ekki hennar

Hafdís Björg segist hafa verið lengi að átta sig á því að þetta væri ekki á hennar ábyrgð, heldur ofbeldismannsins. Hún segir hann ítrekað hafa sagt henni „þetta hefði ekki gerst ef þú hefðir ekki hent mér út. Ég hefði ekki fallið ef þú hefðir ekki hætt með mér.“ Að heyra þetta líka frá öðru fólki, hann hefur aldrei verið eins góður eins og þegar þú varst með hann. Bara eins og ég væri með einhvern sjúkling og ég þyrfti að passa upp á hann. Ábyrgðartilfinning mín gagnvart honum var brengluð og ég tók bara ábyrgð á öllu.“

Aðspurð segir Hafdís Björg marga hafa varað sig við manninum í upphafi sambands þeirra, þar á meðal fyrrum sambýliskona hans.

„Hvaða mann er ég komin með?“ segist Hafdís Björg hafa hugsað strax við upphaf sambands þeirra. Segir hún frétt um samband þeirra hafa birst þegar þau voru aðeins búin að hittast tvisvar. Lýsir Hafdís Björg lögreglufylgd og ferð á sjúkrahús þar sem fyrrum sambýlismaður hennar endaði í öndunarvél. Segist hún hafa hugsað: „Ok ég er ekki að fara frá þessum manni, hann er bara að fara að deyja án mín. Ég bara vaki þarna yfir honum. Þarna náði hann mér bara á núll einni.“

Sambandið stóð yfir í tvö ár og var mikil glansmynd á samfélagsmiðlum. „Bara mesta bull sem ég hef tekið þátt í.“ Hafdís Björg segir þau líka hafa átt fallega tíma og það hafi verið það sem hélt henni í sambandinu eins lengi og raunin varð. Hún segir fyrrum sambýlismann sinn hafa passað upp á að fara með í fjölmiðla að sambandinu væri lokið, þau hefðu skilið í góðu og væru vinir.

„Við vorum ekki vinir. Honum var fylgt út af heimilinu af fjórum lögreglumönnum. Ég urlaðist þegar ég las þessa frétt. Ég vissi bara að ég var ekki tilbúin að stíga fram. Ég var handónýt á þessum tíma. Ég sá ekki bata minn í því að gera þetta að einhverri fjölmiðladrullu, þannig að ég ákvað að hafa þetta út af fyrir mig. Bara það að komast út úr þessu var ógeðslega erfitt.“

Lýsir kerfi sem bregst og lögreglumönnum sem eru þreyttir á kerfinu

Segist hún hafa falið fyrir sínum nánustu hvernig sambandið var, en marga hennar nánustu hafa verið haldnir kvíða hennar vegna. Lýsir hún hvernig henni hafi fundist kerfið bregðast sér í hennar aðstæðum og fundið oft fyrir hroka og leiðindum í samskiptum við lögregluna.

„Þegar hann tekur eitt kastið, þá er ég bara þarna er ofbeldismaðurinn sem allir voru að vara mig við. Og hann bara hló að mér: Við hverju bjóstu? Ég var að koma úr fangelsi og meðferð. Og ég hugsaði bara: Vá er ég svona heimsk? Og það er skömmin sem að eiginlega brýtur sjálfstraustið mitt í mola.“

Segist hún einnig ítrekað hafa lesið fréttir um sinn fyrrverandi í fréttum úr dagbók lögreglunnar án þess að hann hafi verið nafngreindur þar. „Ég held að þeir hafi líka upplifað svolítið vonleysi, þeir eru líka bara orðnir þreyttir á honum, í alvöru aftur….“ segir Hafdís Björg um lögreglumenn.

Bauðst að fara Selfoss leiðina

Aðspurð um hvort hún hafi íhugað að fá nálgunarbann segir Hafdís Björg að henni hafi verið boðið að fara Selfossleiðina, sem felst í því að sá sem nálgunarbannið beinist að skrifar undir samning um að láta þolanda í friði. Segist hún ekki hafa trú á að slíkt myndi virka og frekar valda því að hann myndi reiðast og ástandið verða verra.

Ræða þær Hafdís Björg og Kristín Sif hvaða úrræði skortir í kerfinu fyrir þolendur heimilisofbeldis. „Þeir eru allir með sömu handbókina,“ segir Hafdís Björg um gerendur heimilisofbeldis.

Aðspurð segist Hafdís Björg komin á mun betri stað en áður, hafa lært að hlusta á líkama sinn og taka lífinu með ró og slökun.

Hlusta má á einlægt og ítarlegt viðtal Kristínar Sifjar við Hafdísi Björgu í Dagmálum hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

8 skotheld ráð Ragnhildar til að bæta svefninn – „Því minna sem þú sefur, því fyrr deyrðu“

8 skotheld ráð Ragnhildar til að bæta svefninn – „Því minna sem þú sefur, því fyrr deyrðu“
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Einhver lest sem við settum í gang og fór algjörlega út af sporinu“

„Einhver lest sem við settum í gang og fór algjörlega út af sporinu“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Rúrik hefur látið 5,5 milljóna verðlaunafé renna til SOS – Framburður á firði og Vatnajökli skiluðu sigri í síðustu keppni

Rúrik hefur látið 5,5 milljóna verðlaunafé renna til SOS – Framburður á firði og Vatnajökli skiluðu sigri í síðustu keppni
Fókus
Fyrir 4 dögum

Leikkona sakar Katy Perry um kynferðisbrot – „Nuddaði viðbjóðslegu píkunni sinni á andlitið á mér“

Leikkona sakar Katy Perry um kynferðisbrot – „Nuddaði viðbjóðslegu píkunni sinni á andlitið á mér“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Þriðja dóttirin fædd

Þriðja dóttirin fædd
Fókus
Fyrir 5 dögum

Raunveruleikastjarnan látin aðeins þrítug að aldri

Raunveruleikastjarnan látin aðeins þrítug að aldri