
„Ég fór úr 180 sm í 0,78 sm þegar ég var skorinn aflimaður neðan nafla, ég græt bara yfir einu.“
Loren Schauers var mjög hamingjusamur og fannst líf sitt nær fullkomið þar sem hann starfaði í byggingarvinnu, þar til venjubundið verkefni kollvarpaði lífi hans.
„Ég mun alltaf muna þennan dag. Ég fór upp í lyftarann og var beðinn um að færa vatnshindrun aftur á sinn stað,“ sagði Schauers, sem var þá 18 ára. „Ég sökk strax í slíkan halla að ég byrjaði að fara niður á við í um 15 metra hæð,“ hélt hann áfram. „Næsta sem ég veit er að ég horfi á lyftarann rúlla niður til mín“.
Schauers var að vinna á byggingarsvæði brúarviðgerðar í Wilsall í Montana í september 2019 þegar hann beygði til að forðast bíl sem ók ólöglega fram hjá honum. Hann ók lyftaranum of nálægt brúninni og jörðin undir honum molnaði. Schauers reyndi að stökkva af lyftaranum en fótur hans festist í öryggisbeltinu og féll hann 15 metra áður en hann klemmdist undir 1000 kílóa lyftaranum.
Það er kraftaverk að Schauers, sem nú er 24 ára, hafi ekki dáið á meðan hann var kramdur undir lyftaranum í 30 mínútur. Hann gekkst undir hálflíkamsaðgerð, sem er sjaldgæf aðgerð þar sem líkaminn er fjarlægður fyrir neðan mitti.
Schauers missti mjaðmagrindina, fæturna, hægri framhandlegginn og kynfærin.
Hann deilir baráttu sinni og sigrum í þættinum One Day in My Body sem sýndur var í gær á sjónvarpsstöðinni TLC. Þáttaröðin sem er ný fjallar um einstaklinga með afar óvenjulega sjúkdóma og fatlanir.
„Ég vildi vera með í þáttaröðinni til að sýna öðrum í svipuðum aðstæðum og ég og hinir í þáttunum að maður getur samt lifað fullu lífi jafnvel þótt maður hafi gengið í gegnum eitthvað sársaukafullt og hræðilegt,“ sagði Schauers við The Post.
„Mér finnst mjög mikilvægt að sýna bæði það góða og slæma í lífinu með fötlun,“ bætti hann við.
Meiðsli Schauers eru afar hrikaleg, hann fór úr næstum 180 sm hæð í 60 sm og vegur um 40 kg. Og ekkert er þar sem það á að vera á líkama hans.
„Skurðlæknirinn þurfti að fjarlægja allt frá mjöðmum og niður,“ útskýrði heimilishjúkrunarfræðingurinn Brandon Hawk og benti á neðsti hluti Schauers er þar sem þarmarnir eru staðsettir.
„Til að allt passi rétt þurftu þau að færa allt upp, sem þrýsti síðan á magann, lungun og hjartað,“ sagði Hawk. „Og svo þurftu þau að rýma fyrir ristilstóma fyrir hægðirnar og síðan þvagstóma fyrir þvag því hann er ekki lengur með þvagblöðru.“

Áður en Schauers lenti í þessu hörmulega slysi hafði hann verið í sambandi og búið með Sabiu Reiche í um 15 mánuði.
Reiche, sem þá var tvítug, varð steini lostinn þegar hún fékk símtalið um neyðarástand Schauers.
„Þegar okkur var fylgt inn í herbergi Loren, þar sem hann var þegar svo mikið aflimaður, tók hann svo lítið pláss í rúminu,“ sagði hún. „Ég var sannfærð um að við værum í röngu herbergi. Ég hélt að við værum í barnaherbergi.“
Reiche ekki þegar kom að því að taka ákvörðun um hvernig lífið yrði framundan.
„Þetta var í raun ekki einu sinni ákvörðun fyrir mig. Heilinn á mér hugsaði bara strax: Ókei, þetta er líf okkar núna,“ sagði Reiche, sem nú er 27 ára. „Loren treystir á mig allan sólarhringinn í öllu. Mat eða drykki eða stómaskipti eða að fara í sturtu.“
Schauers kom heim af sjúkrahúsinu um fjórum mánuðum eftir slysið og það tíma að komast í rútínu. Hann er með hjólastól til að komast um og „setutæki“ sem líkist skjaldbökuskel sem gerir honum kleift að sitja beint án þess að þrýsta á hrygginn. Reiche sést einnig bera hann í þættinum.
„Þegar ég var orðinn sex mánaða sat ég einn, vaknaði klukkan átta og níu á morgnana, tæmdi þvagpokann minn, burstaði tennurnar og gerði mig klárann fyrir daginn einn áður en konan mín vaknaði.“

Schauers og Reiche, sem giftu sig árið 2021, hafa deilt lífi sínu á samfélagsmiðlum.
Ein af algengustu spurningunum: Hvernig er kynlíf þeirra?
„Þegar kemur að nánd, þá erum við ekki öðruvísi en önnur venjuleg pör,“ sagði Schauers. „Ég hef kannski ekki alla þá líkamshluta sem ég þarf, en það breytir ekki því hvernig við erum náin hvort við annað eða hvernig við elskum hvort annað eða hvernig við sýnum hvort öðru ástúð.“
Stuttu eftir slysið var Schauers tjáð að hann gæti ekki eignast börn. Hann sagði að það væri „eitt það erfiðasta“ að vinna úr. „Ég grét ekki yfir því að vera ekki með fætur eða mjaðmagrind. Það eina sem ég grét yfir var að geta ekki eignast börn.“

Þrátt fyrir að parið sé í góðu formi, þá eru heilsufarsvandamál Schauers enn til staðar. Hann sést í þættinum berjast við enn eina nýrnasýkinguna.
„Óttinn er að lokum að ná þeim punkti þar sem hann verður ónæmur fyrir öllum sýklalyfjum og þá stöndum við frammi fyrir nýrnabilun,“ sagði Reiche. Schauers bætti við: „Vonandi lifum við til 80 ára aldurs. Við sjáum til.“ Hann sagði við The Post að nú þegar tökum er lokið sé parið að vinna að „nokkrum hlutum til að bæta sjálfstæði mitt“, þar á meðal framförum í gervilimum.