
TV2 skýrir frá þessu og segir að þegar fólk borðar mikið af haframjöli á stuttum tíma, þá virðist það lækka kólesterólið. Þetta er því mikilvægt fyrir þá sem eru í áhættuhópum varðandi hjarta- og æðasjúkdóma og sykursýki 2.
Áður var vitað að haframjöl hefur jákvæð áhrif á kólesterólið en ekki var vitað að mikil neysla þess á skömmum tíma geti lækkað magn þess hratt sagði Gunnar Gíslason, rannsóknastjóri dönsku hjartaverndarsamtakanna, í samtali við TV2.
Í þýsku rannsókninni kom í ljós að bestu áhrifin náðust við neyslu 300 gramma af haframjöli á dag.