fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Pressan

Dularfull hola á golfvelli afhjúpaði 200 ára leyndarmál – Sjáðu myndirnar

Pressan
Þriðjudaginn 3. mars 2026 14:07

Myndir/Davyhulme Park Golf Club

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Óvenjuleg uppgötvun átti sér stað á Davyhulme-golfvellinum á Manchester-svæðinu á Englandi á dögunum þegar umsjónarmaður vallarins varð var við stóra holu (e. sinkhole) á 13. braut.

Golfklúbburinn sem um ræðir er einn sá elsti á Englandi og var hann fyrst opnaður á sjöunda áratug 19. aldar.

Umsjónarmaður vallarins, Steve Hopkins, sá að holan virtist vera býsna djúp og augljóst að golfurum stafaði hætta af henni. Þegar málið var kannað nánar kom í ljós að þarna undir var stór og mikill steinlagður vínkjallari.

Í kjallaranum var að finna mikið magn af flöskum undan allskonar víni, þar á meðal kampavíni og púrtvíni.

Martyn Hamer, kennari hjá golfklúbbnum, segir í samtali við breska fjölmiðla að flöskurnar hefðu reynst vera tómar. „Við fórum að grafa dýpra og þá sáum við allar flöskurnar, sem því miður voru tómar,“ sagði hann.

Kjallarinn er talinn hafa tilheyrt Davyhulme-setri sem stóð á svæðinu þar til það var rifið árið 1888 eftir að ekki tókst að finna kaupanda. Setrið hafði staðið þarna áratugum saman og eru sumar flöskurnar taldar vera hátt í 200 ára gamlar.

Þrettánda hola vallarins ber nafnið „The Cellars“, sem bendir til þess að vitneskja um kjallarann hafi lifað áfram þrátt fyrir að hann hafi verið innsiglaður í vel yfir hundrað ár.

Í tilkynningu á samfélagsmiðlum staðfesti golfklúbburinn að kjallaranum hafi verið lokað á ný og flöskurnar fjarlægðar til varðveislu á meðan ákvörðun er tekin um næstu skref.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 20 klukkutímum

Prestur ákærður fyrir manndráp eftir að maður drukknaði þegar hann var skírður

Prestur ákærður fyrir manndráp eftir að maður drukknaði þegar hann var skírður
Pressan
Í gær

Repúblikanar streyma að útganginum og það ógnar Trump

Repúblikanar streyma að útganginum og það ógnar Trump
Pressan
Í gær

Söngvarinn handtekinn vegna rotnandi líks táningsstúlku sem fannst í Teslu-bifreið hans

Söngvarinn handtekinn vegna rotnandi líks táningsstúlku sem fannst í Teslu-bifreið hans
Pressan
Í gær

Ný hótun frá Rússlandi beinist að Finnlandi og Eystrasaltsríkjum

Ný hótun frá Rússlandi beinist að Finnlandi og Eystrasaltsríkjum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Tilraun til að setja met endaði með harmleik

Tilraun til að setja met endaði með harmleik
Pressan
Fyrir 3 dögum

Aflimaður fyrir neðan nafla eftir hræðilegt slys – Grætur bara yfir einu

Aflimaður fyrir neðan nafla eftir hræðilegt slys – Grætur bara yfir einu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Trump reyndi að fá DoorDash-sendilinn til að tjá sig um hitamál – Það misheppnaðist hrapallega

Trump reyndi að fá DoorDash-sendilinn til að tjá sig um hitamál – Það misheppnaðist hrapallega
Pressan
Fyrir 4 dögum

Fyrsta konan á leið í gálgann

Fyrsta konan á leið í gálgann