fbpx
Laugardagur 28.febrúar 2026
Pressan

Varpa fram nýrri kenningu um hvarf Nancy Guthrie

Pressan
Mánudaginn 16. febrúar 2026 08:20

Ekkert hefur spurst til Nancy í tæpan mánuð.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögregluyfirvöld í Arizona í Bandaríkjunum telja nú líklegra að hvarf hinnar 84 ára Nancy Guthrie tengist innbroti sem fór úr böndunum fremur en að um skipulagt mannrán hafi verið að ræða.

Þetta segir heimildarmaður sem tengist rannsókn málsins við fréttamiðilinn AZFamily.

Í fréttinni kemur fram að bæði rannsakendur og óháðir sérfræðingar sem skoðað hafa myndefni úr dyrabjöllumyndavél við heimili Nancy séu þeirrar skoðunar að ekki hafi verið um skipulagt mannrán að ræða. Þrátt fyrir það telja yfirvöld enn mögulegt að Guthrie sé á lífi.

Hvarf Guthrie aðfaranótt 1. febrúar síðastliðinn hefur vakið gífurlega athygli en hún er móðir sjónvarpsstjörnunnar Savannah Guthrie.

Ýmsum kenningum hefur verið varpað fram um málið og í fyrstu var talið að um þaulskipulagt mannrán hafi verið að ræða og markmiðið hafi verið að fá lausnargjald greitt. En rannsakendur virðast í auknum mæli vera farnir að hallast að því að um tilviljanakennt innbrot hafi verið að ræða sem hafi farið úr böndunum.

Í gær var greint frá því að svartur hanski hefði fundist skammt frá heimili Guthrie og virðist hann samsvara hanska sem grunaður mannræningi sást bera á upptökunni við heimili Nancy. DNA-erfðaefni fannst á hanskanum og er það nú til rannsóknar.

Lögregla handtók mann á föstudagskvöld vegna gruns um aðild að hvarfinu og lagði hún hald á Range Rover-bifreið samtímis. Bifreiðin er enn til rannsóknar en manninum sem var handtekinn var sleppt eftir yfirheyrslu.

Heimildir NBC News herma að rannsóknaryfirvöld hafi fært fókusinn frá honum og öðrum sem voru yfirheyrðir í síðustu viku, auk fjölskyldu Guthrie, en enginn hafi þó verið útilokaður úr rannsókninni á þessu stigi.

Dóttir Nancy, Savannah, birti myndband á Instagram í gær þar sem hún sagði fjölskylduna enn halda í vonina um að móðir hennar fyndist á lífi. Hvatti hún hvern þann sem kynni að hafa upplýsingar um málið til að stíga fram.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Nýtti sér óvenjulegt lagaákvæði og bjó í 5 ár á þekktasta hóteli New York-borgar án þess að borga leigu

Nýtti sér óvenjulegt lagaákvæði og bjó í 5 ár á þekktasta hóteli New York-borgar án þess að borga leigu
Pressan
Í gær

Viðbjóðslegt efni fannst í leynilegri geymslu Jeffrey Epstein

Viðbjóðslegt efni fannst í leynilegri geymslu Jeffrey Epstein
Pressan
Fyrir 3 dögum

Var rangur maður dæmdur? Endurskoða eitt frægasta morðmál Bretlands

Var rangur maður dæmdur? Endurskoða eitt frægasta morðmál Bretlands
Pressan
Fyrir 3 dögum

„Hugsunin um að hann sé að lifa lífi sínu… í hvert skipti sem ég fer að gröf dóttur minnar fyllist ég reiði“

„Hugsunin um að hann sé að lifa lífi sínu… í hvert skipti sem ég fer að gröf dóttur minnar fyllist ég reiði“
Pressan
Fyrir 4 dögum

Óhugnanleg þróun í Mexíkó – Risastórt vandamál stækkar og stækkar

Óhugnanleg þróun í Mexíkó – Risastórt vandamál stækkar og stækkar
Pressan
Fyrir 4 dögum

Sjúki aðskoðarkennarinn: Fjögurra barna móðir fékk yfir 50 ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn fjórum skóladrengjum

Sjúki aðskoðarkennarinn: Fjögurra barna móðir fékk yfir 50 ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn fjórum skóladrengjum