fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Pressan

Fundu „strútsegg“ í þvagblöðru manns

Pressan
Laugardaginn 14. febrúar 2026 11:30

Hinn myndarlegasti þvagblöðrusteinn var fjarlægður úr manninum. Mynd:Farshi et al. 2025

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þegar 35 ára íranskur maður lagði leið sína á sjúkrahús vegna óþæginda í þvagblöðrunni fengu læknarnir vægt áfall. Í þvagblöðrunni var þvagblöðrusteinn á stærð við strútsegg og þau eru nú ekki í minni kantinum.

Maðurinn átti ekki í neinum vandræðum með þvaglát og hann átti sér enga sjúkdómssögu svo heitið gæti. En ljóst var að það var eitthvað mikið að. Live Science skýrir frá þessu.

Þegar læknar skoðuðu maga hans, uppgötvuðu þeir stóran, sleipan og þéttan massa við fremsta hluta grindarholsins, rétt við blöðruna.

Þessi þétti massi sat ekki fastur og myndataka leiddi í ljós að hann var egglaga og um 13 cm að ummáli og 11 cm á breidd. Til samanburðar má geta þess að strútsegg er um 15 cm á lengd og 13 í ummál.

Læknarnir sáu fljótlega að hér var um óvenjulega stóran þvagblöðrustein að ræða en slíkir steinar myndast þegar kalk í þvaginu safnast saman í kristalla. Slíkir steinar myndast yfirleitt í blöðrunni en stundum geta minni nýrnasteinar valdið þeim.

Steinninn var fjarlægður með skurðaðgerð. Hann vóg 825 grömm.

Ef þér líður illa eftir að hafa lesið um þennan stóra þvagblöðrustein þá batnar staðan væntanlega ekki við að vita að þetta er ekki nærri því að vera heimsmet. 2003 var 1,9 kílóa þvagblöðrusteinn fjarlægður úr brasilískum manni og er það sá stærsti sem vitað er um.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 20 klukkutímum

Prestur ákærður fyrir manndráp eftir að maður drukknaði þegar hann var skírður

Prestur ákærður fyrir manndráp eftir að maður drukknaði þegar hann var skírður
Pressan
Í gær

Repúblikanar streyma að útganginum og það ógnar Trump

Repúblikanar streyma að útganginum og það ógnar Trump
Pressan
Í gær

Söngvarinn handtekinn vegna rotnandi líks táningsstúlku sem fannst í Teslu-bifreið hans

Söngvarinn handtekinn vegna rotnandi líks táningsstúlku sem fannst í Teslu-bifreið hans
Pressan
Í gær

Ný hótun frá Rússlandi beinist að Finnlandi og Eystrasaltsríkjum

Ný hótun frá Rússlandi beinist að Finnlandi og Eystrasaltsríkjum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Tilraun til að setja met endaði með harmleik

Tilraun til að setja met endaði með harmleik
Pressan
Fyrir 3 dögum

Aflimaður fyrir neðan nafla eftir hræðilegt slys – Grætur bara yfir einu

Aflimaður fyrir neðan nafla eftir hræðilegt slys – Grætur bara yfir einu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Trump reyndi að fá DoorDash-sendilinn til að tjá sig um hitamál – Það misheppnaðist hrapallega

Trump reyndi að fá DoorDash-sendilinn til að tjá sig um hitamál – Það misheppnaðist hrapallega
Pressan
Fyrir 3 dögum

Fyrsta konan á leið í gálgann

Fyrsta konan á leið í gálgann