fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Segja svefnskort geta skaðað hjartað meira en reykingar

Pressan
Sunnudaginn 8. febrúar 2026 09:00

Hún þarf að passa að sofa nóg.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Krónískur svefnskortur getur valdið meira tjóni á hjartanu en reykingar. Svefnskortur veldur miklu álagi á hjartað og eykur hættuna á alvarlegum hjarta- og æðasjúkdómum.

Þetta kemur fram í umfjöllun tímaritsins Parede sem ræddi við sérfræðinga á heilbrigðissviði um þetta.

Það er vel þekkt að reykingar auka líkurnar á hjartasjúkdómum en sérfræðingarnir, sem tímaritið ræddi við, sögðu að ónógur og lélegur svefn geti einnig haft alvarlegar afleiðingar fyrir hjartað, jafnvel meiri en reykingar.

Hættan á að fá hjarta- og æðasjúkdóma eykst almennt með aldrinum en ákveðnir lífsstílsþættir geta hraðað öldrun hjartans. Hreyfingarskortur, óhollt mataræði og reykingar eru áhættuþættir og nú benda sérfræðingar á svefnskort sem enn einn áhættuþáttinn, áhættuþátt sem ekki hefur verið gefinn mikill gaumur fram að þessu.

Parede segir að samkvæmt niðurstöðum rannsókna tengist svefn, skemmri en fimm klukkustundir á nóttu, aukinni hættu á hjartasjúkdómum. Þetta á sérstaklega við um konur.

Beverly J. Fang, geðlæknir, sagði að líkurnar á að fá hjartasjúkdóma aukist mjög við svefn undir fimm klukkustundum á nóttu. Hún sagði að sumar rannsóknir bendi til að konur geti verið í meiri áhættu hvað þetta varðar en karlar. Hún benti einnig á að svefnskortur örvar taugakerfið sem valdi hærri púls og blóðþrýstingi.

Hún sagði að svefnskortur geti aukið magn stresshormónsins kortísól og valdið hærri viðvarandi blóðþrýstingi. Þetta auki álagið á hjartað og geti aukið hættuna á alvarlegum sjúkdómum.

Jack Wolfson, hjartalæknir, sagði að léleg svefngæði hafi þau áhrif að æðarnar hætti að geta framleitt köfnunarefnisoxíð sem veldur því að æðarnar geta síður slakað á.

Hann sagði að með tímanum geti lítill og lélegur svefn „aukið líkurnar á hjartaáfalli og hjartabilun mjög mikið“ og því sé mikilvægt að beina sjónunum að svefninum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Segja að þessi áhugamál séu góð til að lifa heilbrigðara og lengra lífi

Segja að þessi áhugamál séu góð til að lifa heilbrigðara og lengra lífi
Pressan
Í gær

Lyf gegn fótaóeirð höfðu skelfilegar aukaverkanir – „Þetta hefur eyðilagt líf mitt“

Lyf gegn fótaóeirð höfðu skelfilegar aukaverkanir – „Þetta hefur eyðilagt líf mitt“
Pressan
Í gær

Segja algjöran óþarfa að taka verkjalyf við bakverkjum

Segja algjöran óþarfa að taka verkjalyf við bakverkjum
Pressan
Í gær

Þetta þýða algengustu draumarnir

Þetta þýða algengustu draumarnir