fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Veistu hvaða tilgangi gatið á naglaklippunum þjónar?

Pressan
Mánudaginn 2. febrúar 2026 06:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ef þú notar naglaklippur þá hefur þú kannski tekið eftir litlu gati á þeim. Nei? Náðu í þær og skoðaði, á endanum ætti að vera lítið, kringlótt gat og það er ekki til skrauts, heldur er um að ræða snjallan hönnunareiginleika sem margir átta sig ekki á.

Facebook-notandi hóf umræðuna þegar hann deildi: „Tengdamóðir mín gat ekki hætt að hlæja þegar hún áttaði sig á því að ég hafði ekki hugmynd um hvað litla gatið á naglaklippunum gerir. Nú velti ég fyrir mér … er ég sú eina sem hafði ekki hugmynd?“

Í athugasemdunum deildu netverjar skoðun sinni, en það kom fljótlega í ljós að fleiri voru jafn ruglaðir:

„Er þetta til að geyma tánaglaafklippurnar þínar?“

„Kannski er þetta staður til að geyma tannþráð.“

Sannleikurinn er sá að litla gatið er aðallega hugsað til að festa naglaklippurnar við aðra hluti, eins g lyklakippu, snyrtivörusett eða ferðatösku með hring, snæri eða krók.

Þegar litið er til þess hversu auðvelt það er að týna naglaklippum, þá gerir þessi litli en mikilvægi eiginleiki það auðveldara að passa upp á þær, sérstaklega á ferðalögum. Sumar eru jafnvel með litlum perlukeðjum til að festa þær.

„Ég mun aldrei líta á naglaklippurnar mínar á sama hátt,“ og annar bætti við: „Tími til að festa þær við lyklana mína!“

Nútímaútgáfur naglaklippa  eru frá árinu 1875 þegar Valentine Fogerty fékk einkaleyfi á fyrstu gerðinni í Bandaríkjunum. Fyrir þann tíma notuðu margir litla hnífa til að hirða neglurnar. Árið 1881 fínpússuðu Eugene Heim og Celestin Matz hönnunina sem við þekkjum í dag, þar á meðal litla gatið.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi
Pressan
Í gær

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt
Pressan
Í gær

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu