fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Þetta segir einn þekktasti verkalýðsforingi landsins um ráðninguna á Bjarna

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 27. janúar 2026 10:28

Bjarni tekur við starfinu 1. mars næstkomandi.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins og formaður Verkalýðsfélags Akraness, óskar Bjarna Benediktssyni, fyrrverandi forsætisráðherra, til hamingju með ráðninguna sem framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.

Tilkynnt var um ráðninguna á Bjarna í gær, en hann tekur við starfinu af Sigríði Margréti Oddsdóttur sem ráðin var forstjóri Bláa lónsins á dögunum.

Vilhjálmur segir í færslu á Facebook-síðu sinni að hann voni að samskipti Bjarna við verkalýðshreyfinguna verði góð og uppbyggileg.

„Ég hef sjálfur átt í töluverðum samskiptum við Bjarna í aðdraganda kjarasamninga á liðnum árum, þegar hann gegndi embætti fjármálaráðherra. Ég átti aldrei í vandræðum með samskipti við hann, þótt við höfum vissulega oft ekki verið sammála um aðkomu stjórnvalda í einstökum málum til að styðja við kjarasamninga,“ segir Vilhjálmur sem hefur um árabil verið einn þekktasti verkalýðsforingi landsins.

Vilhjálmur Birgisson.

„Málið er einfaldlega það að þegar kemur að aðilum vinnumarkaðarins skiptir öllu máli að fólk geti talað saman og að traust ríki á milli aðila. Því það er bláköld staðreynd að þegar öllu er á botninn hvolft þá liggja hagsmunir launafólks og atvinnurekenda saman í langflestum tilvikum,” segir Vilhjálmur.

Hann bætir við að það skipti öllu máli fyrir launafólk og stéttarfélögin að fyrirtækjum gangi vel – það skapi svigrúm til bættra kjara, fjölgunar starfa og aukinnar fjárfestingar.

„Nú hvílir þó skýr ábyrgð á nýjum framkvæmdastjóra SA að brýna aðildarfélög SA til að styðja við markmið kjarasamninga, halda aftur af verðhækkunum í verslun og þjónustu og jafnframt veita ríki og sveitarfélögum aðhald þegar kemur að sköttum og gjaldskrárhækkunum.“

Bjarni er sjálfur í athyglisverðu viðtali í Morgunblaðinu í dag þar sem hann segir að stór verkefni séu fram undan.

„Í augnablikinu hef ég áhyggjur af launaskriðinu í opinbera geiranum, sem var um 11% á síðasta ári. Á sama tíma er verið að auka útgjöld í bótakerfunum. Og svo á þessu ári á bara að framkvæma mikið. Eitthvað verður að láta undan. Það þarf að finna leiðir til þess að draga úr þessari spennu,“ segir Bjarni meðal annars.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Hópur ungmenna ofsækir 11 ára stelpu í Kópavogi – „Beinlínis verið að hvetja krakka til að sitja um hana“

Hópur ungmenna ofsækir 11 ára stelpu í Kópavogi – „Beinlínis verið að hvetja krakka til að sitja um hana“
Fréttir
Í gær

Árásir halda áfram eftir sögulegan dauðdaga – Blendnar tilfinningar írönsku þjóðarinnar og mikil óvissa framundan

Árásir halda áfram eftir sögulegan dauðdaga – Blendnar tilfinningar írönsku þjóðarinnar og mikil óvissa framundan
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Miðflokksmaður vill vita hvers vegna forsetamaki Íslands afþakkaði boð í Hvíta húsið – „Hvað var mikilvægara í dagskránni?“

Miðflokksmaður vill vita hvers vegna forsetamaki Íslands afþakkaði boð í Hvíta húsið – „Hvað var mikilvægara í dagskránni?“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Aðalsteinn hættir sem aðstoðarmaður Þorgerðar – Segir að ástæðan komi sennilega flestum á óvart

Aðalsteinn hættir sem aðstoðarmaður Þorgerðar – Segir að ástæðan komi sennilega flestum á óvart