

Golden Globes verðlaunahátíðin fer fram í 83. sinn í kvöld sunnudaginn 11. janúar á Beverly Hilton í Los Angeles. Hátíðin er sýnd í beinni á CBS og Paramount+. Grínistinn Nikki Glaser endurtekur hlutverk sitt frá því í fyrra sem aðalkynnir.
Stjörnurnar gengu rauða dregilinn og skinu skært í sínu fínasta pússi í tveggja klukkustunda dagskrá fyrir verðlaunin.
Þó að svart og hvítt sé algengur litur í fatavali þá völdu margar kvennanna litadýrð meðal annars fulltrúi Íslands, Laufey, í glæsilegum appelsínugulum kjól frá Balenciaga.

Rauðir, bláir, silfraðir, gylltir, grænir sáust líka og svo voru örfáir sem skildu lítið eftir fyrir ímyndunaraflið.
























































