

Golden Globes verðlaunahátíðin fer fram í kvöld í Los Angeles og grínistinn Nikki Glaser endurtekur hlutverk sitt sem aðalkynnir. Líkt og venjan er á slíkum hátíðum fer aðalkynnirinn með kynningarræðu í upphafi þar sem athyglinni er beint að þeim sem tilnefndir eru og góðlátlegt grín eða hatrammt gert að viðkomandi.
Í viðtali við CBS Mornings á mánudaginn sagði Glaser að hún hræðist mest að gera grín að leikkonunni Juliu Roberts.,
„Við erum með svo margar risastórar frægar konur sem ég dáðist að í uppvextinum, og það er í lítið mál fyrir mig að gera grín að yngri leikkonum og leikurum“ útskýrði Glaser. „Allt í lagi, ég get gert grín að þér. Ég er eins og gamalreyndur einstaklingur við hliðina á ykkur. En þegar það er fólk sem ég dáðist að í uppvextinum, þá er það annað mál.“
„Ég er að prófa mig áfram með einræðuna mína á klúbbunum í Los Angeles og allir brandarar um Juliu Roberts, þeir eru ekki að slá í gegn,“ hélt Glaser áfram. „Það er ekki hægt að gera grín að konunni sem Ameríka elskar (e. America’s Sweetheart.) Svo hvað sem ég enda á að segja um hana, þá verður það fínstilltasti brandarinn sem ég hef unnið svona mikið að því hann er mjög viðkvæmur.“
Segir hún að fólk hafi púað á hana þegar hún kom með brandara um Roberts á klúbbunum.
Glaser sló í gegn í fyrsta sinn sem kynnir á Golden Globes verðlaunahátíðinni í fyrra og gerði grín að nokkrum af frægustu einstaklingunum í salnum, þar á meðal Ariana Grande, Nicole Kidman, Keith Urban, Timothée Chalamet og Harrison Ford.
Í viðtalinu í CBS Mornings útskýrði Glaser að í ár ætli hún að fara varlega í bröndurum sínum.
„En maður vill líka gefa fólkinu heima eitthvað til að hlæja að og maður vill gera grín að fólkinu sem það er að deyja úr löngun til að maður geri grín að,“ sagði hún við kynnirinn. „Fólkið heima vill að maður geri grín að A-lista fólkinu. Það vill að maður láti því líða svolítið óþægilega. Ég vil komast upp með þessa brandara án þess að spilla stemningunni í salnum. Það er mjög stefnumótandi og eitt erfiðasta verkefni sem ég hef fengið.“
Roberts, sem er 58 ára, er tilnefnd til Golden Globes-verðlaunanna fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni After the Hunt.

Glaser á reyndar sögu með Roberts. Árið 2024 fór grínistinn með foreldrum sínum á tónleika Taylor Swift í Dublin og þau gerðu grín að myndbandi sem birtist á netinu af Roberts að kitla kærasta Swift, Travis Kelce, í VIP-tjaldinu. Móðir Glaser, Julie, kallaði Roberts „ógeðslega“ og „skrýtna“, en faðir Glaser, Edward, hélt því fram að Kelce væri að „reyna að komast burt frá“ Roberts.
Daginn eftir deildi Glaser myndbandi af móður sinni þar sem hún baðst afsökunar á ummælunum um Roberts. „Ég hefði sennilega átt að segja eitthvað annað en orðið „ógeðslegt“,“ sagði Julie. „Þetta er skrýtið orð. Þetta er ekki fallegt orð. Svo ég biðst afsökunar núna fyrir að nota orðið „ógeðslegt“, en ég held að þetta atvik hafi verið mjög skrýtið.“