fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
EyjanFastir pennar

Þorsteinn Pálsson skrifar: Munurinn á aðildarþjóð og „lobbý-þjóð“

Eyjan
Fimmtudaginn 4. desember 2025 06:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Líklegt er að verndaraðgerðir Evrópusambandsins í þágu járnblendiframleiðslu í þremur aðildarlöndum hafa aðeins verið forleikur að því sem vænta má á næstu árum í viðbrögðum þjóða á ólíkum markaðssvæðum við tollastríði Bandaríkjanna.

Umræðan hér heima og í Noregi varð æsileg. Ekki síst í ljósi þess að útfærslan styrkti stöðu íslenskra og norskra fyrirtækja á Evrópumarkaðnum. En nú hefur loftið lekið úr æsingablöðrunni.

Hvað svo? Forleik fylgir jafnan eftirleikur. Hver á hann að vera?

Forleikurinn

Það lýsir vel hversu pólitískir æsingar geta hlaupið með fólk í gönur að Miðflokknum tókst að draga þingmenn sjálfstæðisfólks til þess að ræða hefndaraðgerðir gegn Evrópusambandinu á sama plani og Rauði flokkurinn í Noregi.

Flestum varð samstundis ljóst að slíkar æsingaaðgerðir myndu tefla EES-samningunum í tvísýnu og bara koma Íslandi og Noregi í koll. Atvinnulíf beggja landa varaði sterklega við þeirri pólitísku stefnubreytingu, sem í þessum æsingaboðskap fólst.

Þingmenn Miðflokksins og Rauða flokksins í Noregi sitja fastir við sinn keip. En þingmenn sjálfstæðisfólks hafa snúið við blaðinu. Æsingaumræðan strandsigldi. Nú má ekkert gera sem veikt geti EES-samninginn.

95% aðild í stað 13%

Í mörg ár hafa þingmenn sjálfstæðisfólks sagt að EES-samningurinn fæli aðeins í sér 13% aðild að Evrópusambandinu og það væri andstætt íslenskum hagsmunum að tengjast öllum 87% sem eftir eru.

Nýr formaður sneri þessari kenningu við í fullveldisgrein á Vísi 1. desember. Þar segir að EES-samningurinn feli í sér 95% aðild og aðeins 5% séu andstæð íslenskum hagsmunum. Þótt niðurstaðan um fulla aðild sé sú sama er þetta allt annað og málefnalegra umræðuplan.

Verndaraðgerðir Evrópusambandsins voru einar og sér of litlar í sniðum til þess að draga mætti af þeim almennar ályktanir um stöðu Íslands og Noregs til lengri tíma.

Æsingaviðbrögð allra stjórnarandstöðuflokkanna hér heima og minnihluta stjórnarandstöðunnar í Noregi gefa aftur á móti tilefni til að ræða Evrópusamstarfið í ljósi þeirrar nýju heimsmyndar, sem við blasir.

Nýtt mat þingmanna sjálfstæðisfólks á umfangi Evrópusamstarfsins minnkar líka bilið sem þarf að brúa.

Viðvaranir raungerast

Langt er síðan ýmsir fóru að ræða að EES-samningurinn gæti reynst ófullnægjandi umgjörð til lengdar. Halldór Ásgrímsson vakti athygli á þessu þegar í utanríkisráðherratíð sinni.

Sérfræðingar bæði í Evrópu og Bandaríkjunum hafa í langan tíma bent á að áhrifin af Brexit, Ameríku fyrst stefnu Bandaríkjanna og stríðsrekstri Pútíns gætu kallað á endurmat á ýmsum sviðum alþjóðamála og hvernig þjóðir tryggðu hagsmuni sína.

Segja má að þessar skrifborðsviðvaranir hafi fyrst raungerst gagnvart okkur í járnblendi varnaraðgerðum Evrópusambandsins.

Allur þunginn í starfi forsætisráðuneytisins og utanríkisráðuneytisins hefur í nær heilt ár snúist um að verjast í þessu litla máli. Munurinn á því að vera „lobbý-þjóð“ og aðildarþjóð hefur verið mjög skýr.

Eftirleikurinn

Í eftirleik þessara umræðna þurfum við að gæta vel að tveimur atriðum:

Annars vegar hættunni af því að varnarviðbrögð við tollastríði Bandaríkjanna verði algengari á flestum markaðssvæðum heimsins á næstu árum. Hins vegar að erlendir fjárfestar treysti ekki EES-samningnum eins og áður.

Það er auðveldara að standa utan tollabandalags á tímum lækkandi tolla en í tollastríði.

Kalt mat á þessum aðstæðum er líklegt til að sýna að í breyttum heimi sé hagsmunum okkar betur borgið sem aðilar að öflugasta tollabandalagi heimsins fremur en að vera „lobbýistar“ í anddyri þess.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Samfélagsmiðill fyrir sjálfstæða Íslendinga

Nína Richter skrifar: Samfélagsmiðill fyrir sjálfstæða Íslendinga
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Björn Jón skrifar: Rótfesta í hverfulum heimi

Björn Jón skrifar: Rótfesta í hverfulum heimi
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Óttar Guðmundsson skrifar: Lokaorð læknisins

Óttar Guðmundsson skrifar: Lokaorð læknisins
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Nína Richter skrifar: AI spegill, herm þú mér, með áhuga á sjálfum sér

Nína Richter skrifar: AI spegill, herm þú mér, með áhuga á sjálfum sér
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Nína Richter skrifar: Þessi ógeðslegu skjöl

Nína Richter skrifar: Þessi ógeðslegu skjöl
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Meinið, meðulin og hliðarverkanir þeirra

Þorsteinn Pálsson skrifar: Meinið, meðulin og hliðarverkanir þeirra
EyjanFastir pennar
31.01.2026

Sigmundur Ernir skrifar: Nú skal sótt að kvenfrelsinu

Sigmundur Ernir skrifar: Nú skal sótt að kvenfrelsinu
EyjanFastir pennar
31.01.2026

Óttar Guðmundsson skrifar: Sr. Sæmi og skrattinn

Óttar Guðmundsson skrifar: Sr. Sæmi og skrattinn