fbpx
Mánudagur 08.júní 2026
Fókus

Unga tónlistarkonan kyndir undir orðróm um ástarsamband með Keith Urban

Fókus
Föstudaginn 10. október 2025 14:30

Maggie Baugh, Keith Urban og Nicole Kidman.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tónlistarkonan Maggie Baugh kyndir undir orðróm um meint ástarsamband hennar og kántrísöngvarans Keith Urban.

Það eru tæplega tvær vikur síðan greint var frá skilnaði stjörnuhjónanna Nicole Kidman og Keith Urban. Greint var frá því að það hafi verið Urban sem vildi skilnaðinn og Kidman  vildi reyna að bjarga hjónabandinu. Hann flutti út af heimilinu í sumar og lagði hún fram skilnaðarpappíra í lok september.

Fljótlega fóru fjölmiðlar vestanhafs að greina frá því að kántrísöngvarinn væri nú þegar byrjaður að hitta nýja konu og þess vegna hafi hann viljað binda endi á nítján ára hjónabandið.

Orðrómurinn er að nýja konan sé gítarleikarinn Maggie Baugh sem spilar með Urban. Hún er talsvert yngri en hann, hún er 25 ára en Urban er 57 ára og Kidman er 58 ára.

Sjá einnig: Nýja kærasta Keith Urban sögð vera ungi gítarleikarinn – Faðir hennar gat ekki neitað orðrómnum

Hvorki Baugh né Urban hafa tjáð sig um málið en margir telja nýtt lag hennar vísbendingu um að eitthvað sé í gangi á milli þeirra.

Hún er að fara að gefa út lagið The Devil Win og deildi broti af laginu á samfélagsmiðlum. Í laginu syngur hún um að bera tilfinningar til einhvers sem hún ætti ekki að gera.

Hlustaðu á klippuna hér að neðan.

@maggiebaughThe Devil Win – 10.10 Pre-Save Link in my bio♬ original sound – MaggieBaugh

Sjá einnig: Nicole Kidman opnar sig um erfiðleika og „óbærilegan sársauka“ í nýju viðtali

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Mamma Mia Party hefur slegið í gegn á Selfossi

Mamma Mia Party hefur slegið í gegn á Selfossi
Fókus
Fyrir 4 dögum

Erna Hrund selur í Skektuvogi – Segist til í að skilja eitthvað eftir í baðskápunum fái hún tilboð

Erna Hrund selur í Skektuvogi – Segist til í að skilja eitthvað eftir í baðskápunum fái hún tilboð
Fókus
Fyrir 6 dögum

Flugfreyja biðlar til farþega um að hætta þessum ósið strax

Flugfreyja biðlar til farþega um að hætta þessum ósið strax
Fókus
Fyrir 1 viku

Netverjum gróflega misboðið yfir steypiboðinu sem Bonnie Blue ætlar að halda – „Getur einhver hringt í barnavernd?“

Netverjum gróflega misboðið yfir steypiboðinu sem Bonnie Blue ætlar að halda – „Getur einhver hringt í barnavernd?“