Flugfarþegi varð vitni að hegðun samfarþega síns og deildi mynd af inn á Reddit-samfélagið.
„Af hverju? Á leiðinni til Los Angeles. Held ég þurfi í sturtu eftir að hafa séð þetta.“
Eins og sjá má á myndinni þá er farþegi sem situr fyrir framan hann berfættur og hvílir fótinn á sjónvarpsskjánum fyrir framan sig.
Yfir þúsund athugasemdir hafa verið skrifaðar við myndina og eru flestir á því að þetta sé sóðaleg og dónaleg hegðun.
„Þess vegna þurrka ég allt af með sprittþurrkum um leið og ég sest niður,“ segir einn í athugasemd og margir eru sammála viðkomandi og segjast alltaf ferðast með þurrkur í handfarangri. Einn segist ætla að byrja eftir að hafa séð myndina. Annar segist sakna kórónuveirufaraldursins þegar ekki þótti skrýtið að spritthreinsa allt í kringum sig.
„Ég þurrka allt sem ég kem til með að snerta með hárinu eða höndunum.“
„Ég sá einhvern skipta um bleyju á bakkaborðinu í einu flugi. Hugsið þetta eins og Greyhound-rútu í loftinu.“
„Þetta er svo ógeðslegt. Hvað er að fólki?“
Einn bendir á að láta einfaldlega flugþjón vita í svona aðstæðum, enda sé um að ræða brot á reglum Delta flugfélagsins: „Tilkynnið flugfreyju STRAX að framfylgja þurfi reglu 7 um flutningssamning. Delta getur neitað að flytja farþega eða fjarlægt þá úr flugvél sinni í eftirfarandi tilvikum:
2) Þegar farþegi er berfættur;
8) Þegar hegðun, klæðnaður, hreinlæti eða lykt farþega skapar óeðlilega hættu á að móðga eða pirra aðra farþega.“
Ef þeir byrja að draga berfætt fólk úr flugvélum, á sama hátt og þeir gera við farþega sem virðast vera ölvaðir, þá munum við kannski sjá minna af þessu.“