fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Ragga Gísla útnefnd borgarlistamaður Reykjavíkur 2025

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 17. júní 2025 14:45

Ragga Gísla. Mynd: Vilhelm Gunnarsson.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri útnefndi í dag Ragnhildi Gísladóttur tónlistarkonu, borgarlistamann Reykjavíkur 2025 við hátíðlega athöfn í Höfða. Útnefningin er heiðursviðurkenning til listamanns sem með listsköpun sinni hefur skarað fram úr og markað sérstök spor í íslensku listalífi. Skúli Helgason, formaður menningar-, íþrótta og tómstundaráðs, gerði grein fyrir vali ráðsins sem að þessu sinni var einhuga um að útnefna einstakling sem hefði sýnt fordæmi í því að fylgja sinni eigin sannfæringu í list og lífi. Listamanninum var veittur ágrafinn steinn, heiðursskjal og verðlaunafé og við athöfnina fluttu Bryndís Jakobsdóttir, dóttir Ragnhildar, og Lay Low tónlist úr smiðju Ragnhildar.

Ragnhildur Gísladóttir fæddist í Reykjavík 7. október 1956. Hún útskrifaðist sem tónmenntakennari frá Tónlistarskólanum í Reykjavík, lauk B.A.-prófi í tónsmíðum frá Listaháskóla Íslands árið 2008 og M.A.-prófi frá sama skóla árið 2013. Hún hóf tónlistarferilinn snemma og hefur áratugum saman heillað með sínum kraftmikla söng, ríkulegri túlkun og tilfinningaríkum flutningi. Með lagasmíðum sínum og sterkri nærveru hefur hún sett mark sitt á íslenskt menningarlíf á ótal hátt og er óumdeilanlega með þekktustu og ástsælustu nöfnum íslenskrar dægurtónlistar.

Ferill Ragnhildar spannar fjölbreytt verk og samstarf við mörg af stærstu nöfnum íslenskrar tónlistar. Hún var söngkona í hljómsveitunum Brunaliðinu, Grýlunum og Stuðmönnum og hefur leikið í mörgum kvikmyndum, til dæmis Með allt á hreinu og Ungfrúin góða og húsið. Þá er hún afkastamikið tónskáld, hefur meðal annars samið fyrir kvikmyndir, dans og leikhús og tekið þátt í ýmsum menningarhátíðum, svo sem Myrkum músíkdögum, Nordic Music Days og Reykjavík Dance Festival.

Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri útnefndi Ragnhildi Gísladóttur tónlistarkonu, borgarlistamann Reykjavíkur 2025 við hátíðlega athöfn í Höfða í dag.
🌼Útnefningin er heiðursviðurkenning til listamanns sem með listsköpun sinni hefur skarað fram úr og markað sérstök spor í íslensku listalífi.
🎼Skúli Helgason, formaður menningar-, íþrótta og tómstundaráðs, gerði grein fyrir vali ráðsins sem að þessu sinni var einhuga um að útnefna einstakling sem hefði sýnt fordæmi í því að fylgja sinni eigin sannfæringu í list og lífi.
Listamanninum var veittur ágrafinn steinn, heiðursskjal og verðlaunafé og við athöfnina fluttu Bryndís Jakobsdóttir, dóttir Ragnhildar og Lay Low tónlist úr smiðju Ragnhildar. Mynd: Reykjavíkurborg.

Brautryðjandi og fyrirmynd

Ragga Gísla, eins og hún er iðulega kölluð, hefur lengi verið brautryðjandi í íslensku tónlistarlífi, ekki síst fyrir kynslóðir íslenskra söngkvenna. Margar ungar konur í tónlist og á fleiri sviðum mannlífsins nefna Ragnhildi sem innblástur og fyrirmynd. Hún hefur hvatt þær til að finna sinn tón og standa með því sem skiptir þær máli.

Árið 2012 hlaut Ragnhildur riddarakross Hinnar íslensku fálkaorðu fyrir framlag sitt til íslenskrar tónlistar.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Oddný táraðist er hún rifjaði upp erfiðleika í æsku – „Ég ætla nú ekki að fara gráta í viðtalinu“

Oddný táraðist er hún rifjaði upp erfiðleika í æsku – „Ég ætla nú ekki að fara gráta í viðtalinu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fastus afhenti Brunavörnum Rangársýslu nýjan dælubíl

Fastus afhenti Brunavörnum Rangársýslu nýjan dælubíl
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Björn afþakkaði boð Melaniu Trump

Björn afþakkaði boð Melaniu Trump