fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
433Sport

Kveður Manchester United eftir úrslit helgarinnar – Æskudraumurinn var ekki langlífur

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 19. maí 2026 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rasmus Højlund hefur kvatt Manchester United eftir að ljóst varð að hann gengur endanlega til liðs við Napoli.

Kaupskylda í lánssamningi hans var virkjuð þegar Napoli tryggði sér sæti í Meistaradeild Evrópu. Félagið greiðir um 38 milljónir punda fyrir framherjann þegar félagaskiptaglugginn opnar í sumar.

Højlund skoraði mark í 3-0 sigri Napoli á Pisa, leik sem staðfesti Meistaradeildarsætið og þar með félagaskiptin.

„Þetta mark var táknrænt,“
skrifaði hann á samfélagsmiðlum.

„Það þýðir að við erum komnir í Meistaradeildina og að ég er nú opinberlega orðinn leikmaður Napoli.“

Hann viðurkenndi að kveðjan við Manchester United væri tilfinningaþrungin. „Það var æskudraumur minn að spila á Old Trafford í rauðu treyjunni,“ sagði hann og þakkaði stuðningsmönnum, leikmönnum og starfsfólki félagsins fyrir tímann.

Højlund sagðist nú horfa fram á nýtt upphaf á Ítalíu og stefna að því að ná enn frekari árangri með Napoli.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Lék undir stjórn Iraola og segir stuðningsmönnum Liverpool að búast við þessu

Lék undir stjórn Iraola og segir stuðningsmönnum Liverpool að búast við þessu
433Sport
Í gær

Englandsmeistararnir að klára fyrstu kaupin

Englandsmeistararnir að klára fyrstu kaupin
433Sport
Í gær

Líklegt að Slot hafni tilboðinu frá London

Líklegt að Slot hafni tilboðinu frá London
433Sport
Í gær

Breytt stefna á RÚV sem setur Heimsmeistaramótið í annað sætið

Breytt stefna á RÚV sem setur Heimsmeistaramótið í annað sætið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Eigandi Napoli hótar því að sparka De Bruyne og Lukaku út í sumar

Eigandi Napoli hótar því að sparka De Bruyne og Lukaku út í sumar
433Sport
Fyrir 2 dögum

Sara Björk kynnt til leiks hjá Haukum með gæsahúðar myndbandi

Sara Björk kynnt til leiks hjá Haukum með gæsahúðar myndbandi