fbpx
Miðvikudagur 20.maí 2026
433Sport

Áhugaverð ummæli Arnars – Hefur ekki neinn áhuga á því að ná árangri með aðferðum Lars og Heimis

433
Mánudaginn 26. janúar 2026 20:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari Íslands, var gestur í útvarpsþætti Fótbolta.net á laugardag þar sem hann fór um víðan völl. Arnar hefur stýrt landsliðinu í eitt ár.

Arnar hefur sterkar hugmyndir um það hvernig hann ætlar sér að ná árangri með landsliðinu og ætlar sér ekki að víkja frá þeirri hugmyndafræði.

Landsliðsþjálfarinn ræddi um hvaða leið hann væri að fara og ræddi í því samhengi um Gullkynslóð landsliðsins sem fór á Evrópumótið 2016 og Heimsmeistaramótið 2018.

„Við þurfum að byrja einhverstaðar, mig langar að gera þetta að sjálfbæru félagsliði. Það verði strúktúr, fólk má karla mig barnalegan. Þetta gerðist með Víking, mig langar að gera þetta með landsliðinu. Búa til strúktúr innan sem utan vallar, það muni ganga svo í mörg ár. Það sem strækaði mig þegar ég horfði á alla leiki með gullkynslóðinni var hversu stuttur tími þetta var, síðasti leikur á HM í Rússlandi gegn Króatíu árið 2018, en það var bara down-hill eftir það. Þetta var Hollands leikur 2014 til 2018, þetta eru fjögur ár. Þetta er ekki nógu gott í fótbolta,“ sagði Arnar í útvarpsþættinum á X977.

Mynd: DV/KSJ

„Hvað gerðist þarna? Við vitum flestar ástæðurnar, fólk getur rætt um þær.“

Arnar segist meðvitaður um það að fótbolti snúist um úrslit en hann útilokar það að spila svipaðan fótbolta og gert var undir stjórn Lars Lagerback og Heimis Hallgrímssonar sem skilaði besta árangri í sögu landsliðsins.

„Ég veit að þetta er úrslitabransi, það er sagt að gullkynslóðin hafi náð í úrslit svona. Ég ber virðingu fyrir því, ég hef ekki áhuga á því að ná árangri eins og landsliðið gerði þá. Ég hef áhuga á því að fá það besta frá þeim, varnarleikur og svona. Við vorum hræddir við að hafa boltann, mig langar að reyna að vera betri í því. Ef fólk vill ekki fara þá leið, þá þarf að ráða annan þjálfarann. Ég held ég hafi fengið starfið til að innleiða þennan fótbolta hjá KSÍ, ég finn fyrir þvílíkum stuðningi frá stjórn KSÍ, formanni KSÍ. Menn vilja fara í þessa vegferð.“

„Það verður upp og niður, það verða úrslit sem henta ekki öllum. Þá verða sleggjudómar, gagnrýni er ekki merkileg fyrir mig þegar ég er 53 ára. Ég vil að strákarnir fái heiður fyrir að spila svona fótbolta, það er mjög erfitt.“

Tómas Þór Þórðarson sem stýrir þættinum sagði við Arnar að ummæli sem þessi um Gullkynslóðina myndu vekja athygli. „Ég hef ekki áhuga á því, mig langar að við bætum okkur í að halda boltann. Það er ekki mín skoðun, það er staðreynd. Við vorum stórkostlegir í varnarleik og með stórkostlega leikmenn, landsliðið 2016-2018 myndi vinna okkur í dag. Þeir myndu finna leið til að vinna okkur, við þurfum að fá þessa þrautseigju. Fókus-levelið okkar er slæmt.“

„Þegar ég er að segja að ég hafi ekki áhuga á að spila eins og þeir, það er rétt. Við viljum taka bestu þættina frá þeim, við viljum bæta hvernig við höldum í boltann.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Rashford að taka gríðarlega óvænt skref?

Rashford að taka gríðarlega óvænt skref?
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Fallbaráttan ræðst ekki fyrr en í lokaumferðinni

Fallbaráttan ræðst ekki fyrr en í lokaumferðinni
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Vieira segir liðið 2004 hafa verið betra – Svona setur hann upp sameiginlegt byrjunarlið

Vieira segir liðið 2004 hafa verið betra – Svona setur hann upp sameiginlegt byrjunarlið
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Stefáni brugðið og segir taktleysið algjört – „Hata allt sem gott er og skemmtilegt“

Stefáni brugðið og segir taktleysið algjört – „Hata allt sem gott er og skemmtilegt“
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Segir að Ferguson hefði sparkað Salah öfugum út eftir svona hegðun

Segir að Ferguson hefði sparkað Salah öfugum út eftir svona hegðun
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Conte vill segja upp störfum

Conte vill segja upp störfum
433Sport
Í gær

Birti saklausar myndir af sjálfri sér í gær – Gat ekki grunað hvaða fréttir færu í loftið skömmu síðar

Birti saklausar myndir af sjálfri sér í gær – Gat ekki grunað hvaða fréttir færu í loftið skömmu síðar
433Sport
Í gær

Pep Guardiola sagður brjálaður yfir lekanum í gærkvöldi

Pep Guardiola sagður brjálaður yfir lekanum í gærkvöldi