Manchester United hefur loksins tryggt sér belgíska miðjumanninn Youri Tielemans eftir að hafa misst af honum þrisvar sinnum á síðustu árum, samkvæmt umfjöllun The Athletic.
United hafði fyrst áhuga á Tielemans árið 2019, en þá ákvað Belginn að ganga til liðs við Leicester City þar sem Paul Pogba var áfram á Old Trafford og Tielemans vildi ekki sætta sig við varamannshlutverk.
Árið 2022 skoðaði félagið möguleikann á að fá hann aftur, en þá kaus Erik ten Hag að styrkja miðjuna með Christian Eriksen og lagði jafnframt áherslu á að reyna að fá Frenkie de Jong.
Sumarið 2023 var Tielemans á lausu eftir að samningur hans við Leicester rann út. Ten Hag ákvað þó að velja Mason Mount í staðinn.
Nú hefur Tielemans loksins gengið til liðs við Manchester United, 29 ára gamall. Samkvæmt The Athletic er litið á félagaskiptin sem ein þau áhættuminnstu á félagaskiptamarkaðnum í sumar og talið að Belginn passi vel inn í leikstíl liðsins.