
Ítalski miðjumaðurinn Sandro Tonali hjá Newcastle er orðaður við Arsenal.
Sky Sports í Þýskalandi greindi frá því fyrr á árinu að Arsenal hefði haft samband vegna Tonali, en nú herma fréttir að félagið gæti reynt að nýta Leandro Trossard í mögulegum skiptidíl.
Newcastle ku jafnframt hafa áhuga á Trossard, sem hefur einnig verið orðaður við Besiktas, Inter, Atletico Madrid og Aston Villa.
Tonali er einnig sagður efstur á óskalista Manchester United, sem er að stokka upp á miðjunni hjá sér.
Newcastle vill þó fá um 100 milljónir punda fyrir ítalska landsliðsmanninn.