

José Mourinho er á leið aftur til Real Madrid samkvæmt nýjustu fréttum frá Spáni og Portúgal. Samningur portúgalska stjórans við spænska stórveldið er sagður fullfrágenginn og mun gilda til sumarsins 2029.
Real Madrid hefur samkvæmt fréttum ákveðið að bæta einu ári við upphaflega samninginn og bæði Mourinho sjálfur og lögfræðingar félagsins hafa samþykkt lokaskilmálana.
Mourinho mun því snúa aftur á Santiago Bernabéu þrettán árum eftir stormasama brottför sína árið 2013. Hann er væntanlegur til Madrídar í næstu viku til að ganga formlega frá endurkomunni.
Portúgalinn tekur við liði Real Madrid sem hefur gengið í gegnum erfitt tímabil með mikilli ólgu innan félagsins og vonbrigðum bæði í Meistaradeildinni og spænsku deildinni.
Mourinho stýrði Real Madrid á árunum 2010 til 2013 og vann meðal annars spænska meistaratitilinn með félaginu. Nú fær hann það verkefni að leiða félagið aftur á topp Evrópufótboltans.